Fasteignaleitin
Skráð 30. júní 2026

Háagerði 55

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
74.7 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
1.002.677 kr./m2
Brunabótamat
44.500.000 kr.
Byggt 1956
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20348081
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Borg fasteignasala og María Mjöll, kynna fallega endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á eftirsóttum stað við Háagerði 55 í Reykjavík.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð á smekklegan hátt og hlotið gott viðhald. Fallegt eldhús og baðherbergi, björt og rúmgóð alrými skapa hlýleika og vandaðan frágang.


Skipulag eignar: Forstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofa og rúmgóð stofa, geymsla, þvottahús í kjallara sem er í sameign og ekki tilgreint í fermetratölu eignar. Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð 74,7 fm. 

Nánari lýsing:
Komið er inn í bjarta og rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað með fallegri dökkri innréttingu, góðu vinnuplássi, vönduðum tækjum og fallegum borðplötum. Opið er á milli eldhúss og borðstofu sem skapar gott flæði.
Borðstofan er rúmgóð með góðu plássi fyrir stórt borð. Stofan er björt með stórum gluggum sem hleypa inn góðri birtu og skapa hlýlegt yfirbragð. Frá stofunni er útgengt á verönd.
Svefnherbergin eru tvö, með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt með flísum á gólfi og veggjum, walk-in sturtu með glerþili, fallegri innréttingu, handklæðaofni og góðu skápaplássi.
Falleg og samræmd gólfefni, hlutlausir litir og vandað efnisval einkenna eignina og skapa bjart og tímalaust heimili.

Endurbætur
  • 2022
  • Íbúðin máluð.
  • Skipt um parket og gólflista á allri íbúðinni, að eldhúsi undanskildu.
  • Skipt um allar innihurðir sem og útihurð úr íbúð í sameign og sett upp eldvarnarhurð.
  • Nýir fataskápar settir í bæði svefnherbergi.
  • Skipt um alla rofa og tengla.
  • 2023
  • Skipt um rafmagnstöflu og komið fyrir þriggja fasa rafmagni.
  • Eldhús endurnýjað og settur gólfhiti
  • 2024
  • Skipt um glugga á norðurhlið íbúðarinnar.
  • Skipt um alla glugga í sameign.
  • Gluggar á suðurhlið yfirfarnir og málaðir.
  • Dyraop stækkað og skipt um hurð út á verönd.
  • 2025
  • Húsið múrviðgert og málað að utan.
  • 2026
  • Skipt um skólplagnir.
  • Drenað fyrir framan húsið
Háagerði er vinsælt og fjölskylduvænt hverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslun, þjónustu, almenningssamgöngur og fjölbreytt útivistarsvæði. Smekkleg og mikið endurnýjuð eign.

Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
982 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Iðufell 4
Efsta hæð
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Iðufell 4
Iðufell 4
111 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
625 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Snæland 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Snæland 2
Snæland 2
108 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
413
877 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Melgerði 9 **laus** INNBÚ FYLGIR
Melgerði 9 **laus** INNBÚ FYLGIR
730 Reyðarfjörður
91.1 m2
Fjölbýlishús
312
416 þ.kr./m2
37.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin