Fasteignaleitin
Skráð 27. okt. 2026

Sunnusmári 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
201.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
471.670 kr./m2
Brunabótamat
130.000.000 kr.
Byggt 2021
5. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
251369120
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Prima fasteignasala kynnir í sölu Sunnusmári 2, íbúð 514, 201 Kópavogur.  íbúðin er skrá samkvæmt FMR 100,6 fm þriggja herbergja íbúð á fimmtu hæð. Íbúðin er 90,9 ásamt 9,7 fm geymslu. Sérmarkt bílastæði er í bílageymslu.

Sunnusmári 2 er einstaklega vel útbúin íbúð með aukin lofthæð, gólfhiti, stein borðplötur á eldhúsi og baði. Einnig er fullkomið sérstætt loftræstikerfi í íbúðinni. Harðparket er á allri íbúðinni nema í votrýmum eru flísar


Eignin skiptist í forstofu með fataskáp.
Stofa og eldhús í opnu rými þaðan sem útgengt er á svalir með glæsilegu útsýni.
Tvö svefnherbergi með fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Upphengt salerni og vönduð hreinlætistæki frá Tengi ehf.
Rúmgott þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í kjallara 9,7 fm að stærð.
Sérmerkt bílastæði í bílageymslu með hleðslustöð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 
 
Smárahverfið er nútímalegt borgarhverfi þaðan sem stutt er í alla þjónustu, s.s. Smáralind, heilsugæslu, skóla og íþróttaaðstöðu ásamt því sem aðgengi að stofnbrautum og þjónustu almennisvagna er afar góð.
Húsið er klætt með Cembrit (sementsklæðningu) og litaðri álklæðningu auk þess sem það eru ál-tré gluggar og er því húsið viðhaldslítið. Allir innveggir eru hlaðnir eða staðsteyptir. Grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu er uppsett í bílakjallara.


Nánari upplýsingar veita:
Óskar Már Alfreðsson lgf s. 6158200 / oskar@primafasteignir.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Prima fasteignasala ehf.
http://www.primafasteignir.is

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bakkasmári 23
Hleðslustöð
Skoða eignina Bakkasmári 23
Bakkasmári 23
201 Kópavogur
182,7 m2
Raðhús
534
982 þ.kr./m2
179.500.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12E
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12E
Hafnarbraut 12E
200 Kópavogur
95,3 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
80.400.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 24
Skoða eignina Asparlaut 24
Asparlaut 24
230 Reykjanesbær
190,5 m2
Fjölbýlishús
523
575 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Skoða eignina Haustakur 4
Skoða eignina Haustakur 4
Haustakur 4
210 Garðabær
103 m2
Fjölbýlishús
312
834 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin