Þriggja hæða raðhús með frábæru útsýni, bílskúr og íbúð í útleigu frábærum stað við íþróttasvæði Fylkis, Elliðaárdalinn og Árbæjarlaug.Eignin er þriggja hæða raðhús með bílskúr og auka íbúð í kjallara á frábærum stað rétt við íþróttasvæði Fylkis, Elliðaárdalinn og Árbæjarlaug. Gróinn og skjólgóður suðurgarður og mikið útsýni er frá eigninni. Miklar endurbætur hafa átt sér stað á ytra byrði raðhúsalengjunnar, og meðal annars hefur húsið verið klætt að hluta, skipt um glugga og gler á öllum stórum gluggum á öllum hæðunum og skipt um þakjárn. Samkvæmt FMR er birt stærð eignar 278,8 fm, þar af er íbúðarhluti 256 fm , 2. herbergja íbúð í kjallara og sérstæður bílskúr 22,8 m2 með góðu geymslulofti. Íbúðin í kjallaranum er skráð sem hluti af heildareigninni og á sama fastanúmeri.
Fasteignamat 2025 er 120.800.000 kr.
Nánari lýsing á jarðhæð.
- Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
- Tvö svefnherbergi með parketlögðu gólfi.
- Eldhús samliggjandi með stofu. Parket á gólfi.
- Gestasalerni nýlega uppgert, vaskur á skáp, sturta, flísar á gólfi og veggjum.
- Stofa og borðstofa eru samliggjandi, bjartar og rúmgóðar með miklu útsýni, útgengt á stórar suðursvalir, parket á gólfi.
Efsta hæð. - Þrjú rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi.
- Sjónvarpsrými/stofa með arni og útgengi út á rúmgóðar svalir til suðurs.
- Baðherbergi með flísalögðu gólfi, eldri innréttingu, baðkari, sturtuklefa og stórum glugga.
Kjallari. - Sameiginleg forstofa fyrir þvottahús og kjallaraíbúðina.
- Kjallaraíbúðin skiptist í:
- Tvö svefnherbergi með parket á gólfi.
- Eldhús með hvítri innréttingu og flísum á gólfi.
- Stofa með flísum og parketi.
- Baðherbergi með sturtu og geymslu.
- Salerni með vask.
Á undanförnum árum hefur húsfélagið í lengjunni staðið fyrir umfangsmiklum endurbótum og viðhaldi á ytra byrði lengjunnar.
Árið 2017 var m.a ráðist í eftirfarandi framkvæmdir. - Endurnýjun þakjárns, aluzink með pappa
- Endurnýjun niðurfallsröra
- Endurnýjun þakrenna
- Endurnýjun á klæðningu þakkants og áfellum frá þakrennu og framan á þakkant
- Málun og endurbætur á þakkanti.
Árið 2019-2020 var m.a. ráðist í eftirfarandi - Nýir gluggar settir í suðurhlið (stóri glugginn á hverri hæð)
- Klæðning sett á suður- og austurhlið
- Glugga og hurðakarmar málaðir á suður- og austurhlið
- Svalagólf máluð og sílanböðuð.
Sumar 2021 var óklæddur hluti hússins (vesturgafl og norðurhlið) háþrýstiþveginn, múrskemmdir lagaðar og málaður.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu skóla og leikskóla sem og íþróttasvæði Fylkis, Elliðaárdalinn og Árbæjarlaug, mikið og fallegt útsýni.
Eignin er auglýst af eiganda en frágangur verður í höndum löggilts fasteignasala eða lögmanns með sérþekkingu á frágangi húsnæðissamninga.
Tilboðsgerð
Finndu frekari upplýsingar um eignina á
www.e-fasteignir.is-
Söluyfirlit-
Senda fyrirspurn-
Tilboðsgerð