Skráð 16. jan. 2026

Víkurheiði 20

Atvinnuhúsn.Suðurland/Selfoss-800
Verð
24.750.000 kr.
Fasteignamat
20.550.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2520771
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
0 - Úthlutað
ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Góð iðnaðarhúsabil sem eru  í byggingu við Víkurheiði 20 á Selfossi.
Húsið er timburhús klætt að utan með lituðu bárujárni, þak er kraftsperruþak klætt með járni.
Bilin eru í tveim stærðum, endabilin eru 71m2 og miðjurnar eru 66m2. Að auki er eitt bil sem er 101,1m2
Að innan skilast bilin gipsklædd og fullmáluð, skilast samkvæmt skilalýsingu sem er hér að neðan. Hiti er í gólfi og bilin skilast með tilbúinni lýsingu.
Innkeyrsluhurðir eru 3,5 metrar á hæð og 4,0 metrar á breidd og skilast með hurðaopnara.
Lóðin er stór og skilast öll malbikuð.
Áætluð afhending er í okt 2026
Verð á miðjubilum er kr. 24.750.000,-
Verð á endabilum er kr. 26.625.000,-
Verð á 101,1m2 bili er kr. 35.890.500,-

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga s 482-4800 og arborgir@arborgir.is

Skilalýsing:
Teikningar:
Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og
hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.
Lóðarfrágangur:
Lóðin Víkurheiði 20 skilast með malbikuðu plani á allri lóðinni, malbikað plan með langhliðum er ca.
13,5m og um 22m við gafla hússins.
Ekki er gert ráð fyrir sorpgeymslum, það er á ábyrgð hvers eiganda fyrir sig.
Séreign hvers bils er breidd bils og frá útvegg húss að lóðarmörkum, þó með aksturkvöð í gegn.
Gröftur og fylling:
Grafið er niður á fast og fyllt í með grófri möl sem er þjöppuð.
Sökklar:
Sökklar eru að hámarki 1000mm háir.
Járnabinding er 2xK12 kambstál efst og neðst í sökkli, einföld 6mm járnamottugrind og K10
kambstál í tengijárnum við plötu.
Einangrun á innanverða sökkulveggi er 16kg/75mm plasteinangrun.
Steypa er af gerðinni S-250.
Botnplata:
Járnabinding er 7mm járnamottugrind.
Steypa er af gerðinni S-250.
Botnplata er vélslípuð.
Lagnir:
Skolp-og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu.
Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu og tengdar við tengikistur, nemar og stýringar fylgja ekki.
Rör í rör kerfi er fyrir neysluvatn og er samkvæmt teikningu, lagt að vöskum, salerni, undir
botnplötu og er tengt við tengikistur.
Búið verður að setja upp einn skolvask í rýminu.
Ekki verður búið að stúka af baðherbergi, einungis er gert ráð fyrir öllum lögnum að baðherbergi, er
það á ábyrgð kaupanda að setja veggi og baðherbergi upp.
Raflagnir:
Rafmagnstafla er komin og raflögn skilast fullfrágengin samkvæmt teikningu, gert er ráð fyrir 4
ljósum og 4 tenglum, kaupandi getur þó bætt við rofum og tenglum eftir þörfum á sinn kostnað.
Gert er ráð fyrir tengibúnaði fyrir hleðslu rafbíla skv. gr.6.7.1.
Útveggir:
Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45x195mm og klæddir 9mm krossvið að
utan til stífingar. Útveggjaklæðning er litað báruál.
Einangrað er með 150mm þéttull, síðan rakavarnarlag, lagnagrind og veggir klæddir með 12mm
krossvið + 13mm gipsi.
Vegg/lofthæð hússins er 4,0m.
Brunaveggur milli bila:
Brunaveggir milli bila eru byggðir upp úr 45x145mm timburgrind, einangraðir með 145mm þéttull
og klæddir með 12mm krossvið + 13mm gipsi beggja vegna.
Þak og loft:
Þak er byggt upp úr kraftsperrum, klætt með 18mm þakkrossvið.
Þakpappi er frá Isola og ofan á þakpappa er klætt með lituðu bárustáli.
Loft er einangrað með 200mm þakull síðan rakavarnarlag, lagnagrind og 2x13mm gips.
Málning:
Öll rými skilast spörtsluð og full máluð að innan í hvítum lit.
Þakskegg:
Þakkanturinn er þrjú borð – vatnsklæðning, undirklæðningin er úr timbri.
Rennur eru innbyggðar í þakskegg og eru úr plasti, tengdar fráveitukerfi í götu.
Niðurfallsrör eru úr sama efni.
Flasningar eru yfir rennum og á þakkanti.
Allur þakkantur er málaður í lit.
Gluggar og hurðir:
Gluggar og gönguhurðir eru úr timbri, málað í lit að innan og að utan.
Frágangur í kringum glugga og hurðir er úr blikki í sama lit og utanhúsklæðning.
Aksturshurðir eru h=3,5m x b=4m flekahurðir, ásamt hurðaopnara.
Opinber gjöld:
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og
stofngjald holræsa.
Inntaksgjöld vatns, rafmagns og hita eru greidd.
Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu, (kaupandi greiðir).
Afhendingartími og skil húsnæðis:
Eignin mun verða afhent í okt 26.
Kaupandi yfirtekur VSK kvöð á byggingunni sem áætluð er um 3.300.000.
Búið verður að gera eignaskiptayfirlýsingu fyrir eignina.
Búið verður að stofna húsfélag fyrir eignina.
Inntaksrými í sameign er fullfrágengið.
Sérafnotafletir fylgja hverju bili fyrir sig og er áhugasömum kaupendum bent á að kynna sér það
sérstaklega í eignaskiptasamning.
Rétt er að taka fram að húsið er hannað þannig að lítið mál er að taka veggi niður milli bila til að
geta stækkað þau.
Öryggis og lokaúttekt hefur farið fram við afhendingu eignarinnar.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturbakki 11, bil 0103
Vesturbakki 11, bil 0103
815 Þorlákshöfn
72 m2
Atvinnuhúsn.
346 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 10 - 0108
Vesturbakki 10 - 0108
815 Þorlákshöfn
45.2 m2
Atvinnuhúsn.
529 þ.kr./m2
23.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 10
Skoða eignina Vesturbakki 10
Vesturbakki 10
815 Þorlákshöfn
45.2 m2
Atvinnuhúsn.
529 þ.kr./m2
23.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 10 - 0104
Vesturbakki 10 - 0104
815 Þorlákshöfn
45.2 m2
Atvinnuhúsn.
529 þ.kr./m2
23.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin