Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2024
Deila eign
Deila

Smáratún 11

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
228.5 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
634.136 kr./m2
Fasteignamat
122.200.000 kr.
Brunabótamat
105.300.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2081761
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (suðurhlið 2020)
Þak
Endurnýjað að hluta (Þakskegg 2016)
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Timburverönd með skjólveggjum og heitum potti.
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG og Margrét Rós löggiltur fasteignasali kynna í sölu fallegt og vel við haldið 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með sérstæðum tvöföldum bílskúr og stórum garði við Smáratún 11, 225 Garðabæ. Eignin skiptist eftirfarandi, á neðri hæð er eitt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og rúmgóð stofa með útgengi á timburverönd til suðurs, borðstofa og eldhús. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol og stórt baðherbergi. Aftan við hús er stór og gróinn garður ásamt timburverönd og heitum potti. Bílskúrinn er tvöfaldur með hita, rafmagni og millilofti. Öll aðkoma að húsinu er til fyrirmyndar, innkeyrsla og bílastæði eru hellulögð.
Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 228,5 m2, þarf af er bílskúr 56 m2. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

Um er að ræða vel staðsett fjölskylduhús í barnvænu og rólegu umhverfi þar sem leik- og grunnskólar eru í göngufæri ásamt íþróttaaðstöðu og sundlaug. Fallegar gönguleiðir um nesið og stutt í ósnorta náttúruna til að njóta útiverunnar.

Nánari skipting og lýsing á eignarhlutum:
Jarðhæð: Komið er inn um aðalinngang í forstofu og þar inn af er inngengur fataskápur á vinstri hlið, en á hægri hlið er þvottaherbergi með innréttingu og útihurð. Næst kemur gestasalerni og þar á eftir herbergi með útgengi á verönd. Inn af forstofugangi er komið í opið og bjart alrými með eldhús, borðstofu og stofu sem er með útgengi á timburverönd til suðurs.
Efri hæð: Gengið er upp tvískiptan timburstiga upp á efri hæð í opið rými með sjónvarpshol sem tengir saman allar vistaverur þar. Þar eru alls fjögur svefnherbergi ásamt hjónaherberginu og stórt baðherbergi með baðkari. Fyrir ofan efri hæð er einnig risloft sem aðgengi er að úr tveimur herbergjum.
Bílskúr: Tvöfalldur bílskúr með hita og rafmagni stendur við hlið hússins og er hann skráður 56 m2 að stærð. Tvær bílskúrshurðir með rafmagnsopnun og þrír stórir gluggar með opnanlegu fagi. Geymslu milliloft er yfir stórum hluta bílskúrs og innangengt er um útidyrahurð á hlið bílskúrs. Býður upp á möguleika á auka íbúð.
Pallur: Stór sólpallur er aftan við hús og á honum er heitur pottur með smíðaðri umgjörð.
Gólfefni: Á neðri hæð er fallegt viðarparket á stofu, hluta allrýmis og herbergi. En flísar eru á gólfum í eldhúsi, borðstofu, þvottaherbergi, gestasalerni og forstofu. Á efri hæð eru viðarparket á öllu gólfi, utan baðherbergis þar sem eru flísar.

VILTU VITA HVERS VIRÐI ÞÍN FASTEIGN ER Í DAG? BÓKA FRÍTT FASTEIGNAVERÐMAT

Framkvæmdir og viðhald síðustu ára:
  • Skipt var um þakskegg á húsi (2016)
  • Húsið var klætt með bárujárni (2020)
  • Nýr sólpallur reistur ásamt umgjörð utan um heitan pott (2020)
  • Skipt um glugga á suðurhlið hússins (2020-2024)
Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532adalsteinn@fstorg.is

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR TIL AÐ LESA UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINA

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1984
56 m2
Fasteignanúmer
2081761
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.550.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkastígur 8
Bílskúr
Opið hús:23. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Fálkastígur 8
Fálkastígur 8
225 Garðabær
191.6 m2
Einbýlishús
524
712 þ.kr./m2
136.400.000 kr.
Skoða eignina Víðiholt 10
Skoða eignina Víðiholt 10
Víðiholt 10
225 Garðabær
180 m2
Raðhús
625
744 þ.kr./m2
134.000.000 kr.
Skoða eignina Hestamýri 2B
3D Sýn
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Hestamýri 2B
Hestamýri 2B
225 Garðabær
182.4 m2
Fjölbýlishús
322
772 þ.kr./m2
140.900.000 kr.
Skoða eignina Hestamýri 1B
3D Sýn
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Hestamýri 1B
Hestamýri 1B
225 Garðabær
190.4 m2
Fjölbýlishús
32
761 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin