Ásberg fasteignasala kynnir eignina: Sjávarborg 4, 190 Vogar, birt stærð 91.4 m². Einstaklega vandað og vel skipulagt raðhús á einni hæð með mikilli lofthæð. Húsið stendur í Sjávarborg, nýju hverfi í uppbyggingu í Vogum með glæsilegu sjávarútsýni. Mikil lofthæð og gólfsíðir gluggar gefa alrýminu bjart og opið yfirbragð. Eignin afhendist með innbyggðum tækjum í eldhúsi. Laus við kaupsamning. 3 svefnherbergi auk geymslulofts sem nýta má sem svefnloft Allt að um 4 metra lofthæð í stofu Gólfsíðir gluggar í alrými Gólfhiti með Danfoss stýrikerfi Sólpallur úr lerki með skjólvegg milli húsa.
Nánari lýsing eignar Forstofa: Flísar á gólfi og rúmgóðir fataskápar. Hurð úr forstofu inn á gang. Stofa og borðstofa: Opið og bjart alrými með eldhúsi. Lofthæðin nær um fjórum metrum á hæsta punkti og setur mikinn svip á rýmið. Innfelld lýsing er að hluta til. Úr stofu er gengið út á sólpall. Eldhús: Opið við stofu. Innréttingin er úr ljósgráu melamíni frá Parka með svartri quartz-borðplötu. Spanhelluborð, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti fylgja. Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum. Í hverju þeirra er fataskápur í sama lit og efni og eldhúsinnréttingin. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með 60×60 cm flísum. Þar er upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum, auk tengis fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsluloft: Fyrir ofan baðherbergi, með parketi á gólfi. Stigi upp á loftið fylgir. Loftið má einnig nýta sem svefnloft.
Frágangur innanhúss Á gólfum er vandað 8 mm harðparket frá Parka (Light Cracket Oak) og flísar í forstofu og á baðherbergi. Innveggir eru úr timburgrind klæddri plötum og uppfylla kröfur um hljóðeinangrun milli herbergja. Innihurðir eru hvítar og yfirfelldar frá Parka. Rimlagluggatjöld eru fyrir öllum gluggum.
Lóð og umhverfi Lóðin er tyrfð. Við bakhlið er sólpallur úr lerki með skjólvegg milli húsa. Stétt og bílastæði við aðkomuhlið eru hellulögð og snjóbræðsla er í gangstétt. Bílastæði er fyrir framan hvert hús.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is asberg@asberg.is
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, jon@asberg.is Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837, thorunn@asberg.is
Kostnaður kaupanda: 1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili. 2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800. 3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 69.900 m/vsk. 5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
22/12/2023
44.400.000 kr.
62.000.000 kr.
91.4 m2
678.336 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.