Fasteignaleitin
Skráð 19. sept. 2025

Grundargarður 6

FjölbýlishúsNorðurland/Húsavík-640
89.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
38.500.000 kr.
Fermetraverð
431.131 kr./m2
Fasteignamat
37.200.000 kr.
Brunabótamat
52.500.000 kr.
Byggt 1991
Jarðhæð af 3
Garður
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
2152766
Landnúmer
218989
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já úr stofu
Upphitun
Hitaveita
Lögeign kynnir eignina Grundargarður 6, 640 Húsavík, íbúð 103

Eignin er 89,3 m2 íbúð á jarðhæð í þriggja hæða fjöleignarhúsi. Eignin hefur verið gerð upp að miklu leyti að innan þar sem m.a var baðherbergi og eldhús endurnýjað ásamt gólfefnum. Hús að utan er einnig í góðu ástandi en þak var endurnýjað fyrir um ári síðan og verið er að ljúka við að mála húsið að utan.
Íbúðin er vel uppsett með tveimur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu, baðherbergi, eldhúsi, forstofu og rúmgóðri geymslu innan íbúðar. Eignin er í göngufæri við alla helstu þjónustu. 


Nánari Lýsing
Komið er inn í parketlagða forstofu, úr forstofu er bæði geymsla á V/hendi og parketlagt hol. Stofan er rúmgóð, björt og með útgengi út á steypta verönd. Opið er yfir í eldhúsið úr stofu sem gefur rýminu gott flæði, eldhúsið er með hvítri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum og svartri bekkplötu, við endan á innréttinguni er borðkrókur. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni sem eru bæði með fataskápum og parket á gólfi. Baðherbergið er nýlega tekið í gegn á smekklegan hátt, flísar á gólfi og á veggjum að hluta, hvít vaskainnrétting ásamt hvítri innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél, vegghengd wc og "walk in" sturta. 

Annað: 
Aðgangur (hlutdeild) er að sameiginlegu þvottahúsi og geymslum í sameign á 2. og 3. hæð(4*25fm. rými). Einnig er hjóla/vagnageymsla á jarðhæð. Stigagangurinn er stór og opinn.
Staðsetningin er góð, miðsvæðis á Húsavík og stutt í helstu grunnþjónustu s.s. skóla og verslun auk þess sem leikvöllur er fyrir framan húsið.
Síðasta sumar var þakið endurnýjað á fjöleignarhúsinu. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is eða Hinrik Marel Jónasson Lund lgf, í síma 8350070 eða netfanginu Hinrik@logeign.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/04/202637.200.000 kr.37.000.000 kr.89.3 m2414.333 kr.Nei
13/06/202225.000.000 kr.33.000.000 kr.89.3 m2369.540 kr.Já
04/10/201310.100.000 kr.11.700.000 kr.89.3 m2131.019 kr.Já
25/01/20089.095.000 kr.10.000.000 kr.87.1 m2114.810 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögeign
www.logeign.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kleppsvegur 38
Opið hús:15. nóv. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Kleppsvegur 38
Kleppsvegur 38
105 Reykjavík
103,9 m2
Fjölbýlishús
413
769 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 56
Skoða eignina Hraunbær 56
Hraunbær 56
110 Reykjavík
88,5 m2
Fjölbýlishús
312
693 þ.kr./m2
61.300.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 7
Á einni hæð
Skoða eignina Dísardalur 7
Dísardalur 7
260 Reykjanesbær
108,3 m2
Fjölbýlishús
413
623 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 5A
Skoða eignina Risadalur 5A
Risadalur 5A
260 Reykjanesbær
108,7 m2
Fjölbýlishús
312
621 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin