SAMÞYKKT HEFUR VERIÐ TILBOÐ Í EIGNINA MEÐ EÐLILEGUM FYRIRVARA
VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Þelamörk 56, 810 Hveragerði.
Um er að ræða vel staðsett steinsteypt einbýlishús, samtals 104,7 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin telur forstofu, svefnherbergisgang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottahús/geymslu.
Hellulögð innkeyrsla, afgirtur pallur fyrir aftan hús með heitum potti.
Húsið stendur á ca 800 fermetra lóð sem býður upp á mikla möguleika.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á s.l. árum.Sjá staðsetningu hér.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Lýsing eignar:
Forstofa með fataskáp. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I með fataskáp og glugga til norðs.
Svefnherbergi II með fataskáp og glugga til suðurs.
Hjónaherbergi með fataskáp og glugga til suðurs.
Baðherbergi með vaskinnréttingur, vegghengt wc, sturtuhorni og handklæðaofni.
Gólf og veggir flísalagðir og hiti í gólfi. Gluggi til austurs.
Eldhús með miklu skápaplássi, eldavél með keramik helluborði, vifta, tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Útgengt á bílaplan. Geymsla er inn af þvottahúsi.
Borðstofa/stofa með miklum gluggum til suðurs og hurð út á sólpall.
Afgirtur
sólpallur með
heitum potti og
útisturtu. Skjólgott svæði mót suðri.
Garðskúr á lóð. Mikill rifsberjarunni er á lóðinni við enda bílaplans en þar er gert ráð fyrir
87 m2 bílskúr. Teikningar fylgja með.Snjóbræðsla í stétt fyrir framan hús og hluta af hellulögðu bílaplani.
LED-kerfi í húsinu sem hægt er að stýra úr síma eða veggrofum.
Gólfefni:
Flísar á forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.
Parket á herbergjum, gangi, eldhúsi og stofu.
Nýlegar framkvæmdir (frá 2019):Nýtt járn og pappi á þaki.
Húsið var sprunguviðgert.
Húsið málað að utan.
Húsið málað að innan.
Baðherbergi endurbyggt. Lagnir í því endurnýjaðar.
Nýtt parket á herbergjum, gangi, stofu og eldhúsi.
Rofar og tenglar endurnýjaðir.
LED-kerfi fyrir lýsingu sett upp.
Opnanleg fög endurnýjuð og gler í gluggum endurnýjað.
Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur
gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur
elinborg@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.