Hlynskógar 4, 300 Akranes er glæsilegt 5 herbergja einbýlishús sem byggt var árið 2010 og er staðsett á einstaklega góðum og fjölskylduvænum stað á Akranesi. Eignin er með stórum skjólgóðum sólpalli og innbyggðum bílskúr, en alls er um er að ræða 218,9 fermetra eign sem skiptist í 183,3 fermeta íbúðarrými og 31,6 fermetra bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, sólstofu, 2 baðherbergi, 4 svefnherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og bílskúr. Til viðbótar er 12 fm köld útigeymsla ásamt yfirbyggðu skýli með glerþaki. Í húsinu er smart ljósastýring, öll loft tekin upp, sérsmíðaðar háar innihurðir, niðurlímt gegnheilt parket og hiti í öllum gólfum. Mikið lagt í eignina, sjón er sögu ríkari.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 218,9 fm, þar af er bílskúr 31,6 fm
Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp. Flísar á gólfi.
Hol / gangur: Frá forstofu er komið inn í stórt hol í miðrými húss þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Parket á gólfi.
Eldhús: Opið með stofu hússins, hvítar innréttingar frá Eirvík, granítborðplötur og vönduð Miele tæki. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur, ofn og gufuofn í vinnuhæð. Mikið skápapláss ásamt borðeyju og parket á gólfi.
Stofa / borðstofa / sólstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum og kamínu. Útgengi á stóran sólpall með heitum potti. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: 17,2 fm með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: 10,9 fm með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: 10,9 fm. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III: 10,9 fm. Parket á gólfi.
Baðherbergi I: Með upphengdu salerni, handklæðaofni, stórri sturtu, góðum skápum og granítborðplötu. Útgengi á verönd þar sem heiti potturinn er. Flísar á gólfum og hluta veggja.
Baðherbergi II: Með upphengdu salerni, hornbaðkari, góðum skápum og granítborðplötu. Flísar á gólfum og hluta veggja.
Þvottahús: Með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Mikið skápapláss og útgengi út í garð. Flísar á gólfi.
Bílskúr: 31,6 fermetrar. Búið er að leggja ídráttarrör fyrir hleðslustöð út í bílaplan.
Lóðin: Eignin stendur á 743,8 fm lóð sem er einstaklega snyrtileg með glæsilegum sólpalli til suðurs og heitum potti. Steypt bílaplan.
Frábært tækifæri til að eignast glæsilegt einbýlishús með bílskúr á góðum stað á Akranesi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu og verslanir.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið asgeir@procura.is og Oddný María aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið oddny@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Kynntu þér
fasteignaþjónustu Procura og
nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.