Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Vitateigur 2

EinbýlishúsVesturland/Akranes-300
306.8 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
390.808 kr./m2
Brunabótamat
139.150.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
210232019
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Heimili fasteignasala kynnir Vitateig 2. Vel staðsett einbýli á tveimur hæðum teiknað af Kjartani Sveinssyni. Miklar endurbætur hafa verið gerðar síðustu ár. Eignin skiptist í tvær hæðir og 49 fm bílskúr.  Möguleiki að útbúa séríbúð á neðri hæð.  Á neðri hæð eru 2 svefnherb, þvottahús, baðherb, forstofa og hol með útgengi út í garð. Á efri hæð eru 4 svefnherb, fataherb, baðherb, eldhús, borðstofa, stofa og stórt hol, suður svalir.  Stór afmörkuð lóð ásamt verönd með heitum potti. Glæsilegt útsýni. 

** Bókið skoðun hjá HÉR **

Nánari lýsing neðri hæð:
Forstofa: Rúmgóð, flísar á gólfi, gott skápapláss. Hol: Rúmgott og bjart, útgengi út í garð og á nýja aflokaða verönd með heitum potti.
Svefnherbergi I: Gluggar á tveim hliðum, parket á gólfi. Svefnherbergi II: Gluggar á tveim hliðum, parket á gólfi. 
Þvottahús:  Rúmgótt og bjart. Þarfnast endurbóta. Innaf þvottahúsi er kyndiklefi/geymsla. Baðherbergi: Steyptur sturtubotn, létt innrétting undir handlaug, flísar á gólfi og veggjum. 

Nánari lýsing efri hæð: 
Hol: Bjart og rúmgott, útgengi út á skjólgóðar og sólríkar suður svalir. Gott útsýni. Stigagangur: Steyptur stigi á milli hæða. Falleg gluggasetning beggja vegna. Mikil lofthæð.
Eldhús: Opið við borðstofu. Glæsileg nýleg hvít innrétting, gott skápapláss. Tveir innbyggðir ísskápar og tveir veggofnar. Innbyggð uppþvottavél. Spanhelluborð.  Tveir gluggar Búr: Inn af eldhúsi með stæði fyrir þvottavél.
Borðstofa/stofa: Er opið við eldhús. Bjart og rúmgott fjölskyldurými. Stórir gluggar, gott útsýni. Kamína. 
Hjónaherbergi III: Rúmgott og bjart, parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með góðu skápaplássi. Svefnherbergi IV, V, VI: Rúmgóð og björt, parket á gólfum.
Baðherbergi:  Eldri innrétting, flísar á gólfi og veggjum, Steyptur sturtuklefi, baðkar. Opnanlegur gluggi. 
Bílskúr: heitt og kalt vatn, rafmagn, gluggar. Hleðslustöð. 

Endurbætur og viðhald ( ath listinn er ekki tæmandi, nánari upplýsingar hjá söluaðila) 
2018 Opnað á milli eldhúss og borðstofu. Eldhús endurnýjað. Ný innrétting og tæki. Gólf í svefnherbergisálmu flotuð. Rafmagn yfirfarið,  innihurðir endurnýjaðar. 
2019 Þak háþrýstiþvegið og Mónósílan borið á. Blöndunartæki á baðherbergjum endurnýjuð.
2020-2021: Húsið háþrýstiþvegið. Umfangsmiklar sprunguviðgerðri á útveggjum. Vatnsbretti glugga endurnýjuð ásamt þakrennum. Hús málað. Garður hreinsaður og þökulagður. Jarðvegsdúkur og möl sett meðfram bílskúr. 
2022: Steyptur upp veggur sem afmarkar lóð kringum húsið. Verönd smíðuð og heitum potti komið fyrir. 

Hér er um að ræða afar gott og vel skipulagt fjölskylduhús þar sem allir fá sitt rými.  Miðrými, stofa, eldhús og borðstofa er bjart og rúmgott með glæsilegu útsýni til sjávar fullkomið til samveru með fjölskyldunni. 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. sigridur.lind@heimili.is / 8994703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hverfisgata - aukaíbúð 50
Hverfisgata - aukaíbúð 50
220 Hafnarfjörður
233 m2
Einbýlishús
725
622 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Hesthamrar 5
Bílskúr
Skoða eignina Hesthamrar 5
Hesthamrar 5
112 Reykjavík
198 m2
Hæð
513
606 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarlundur 6
Bílskúr
Skoða eignina Skógarlundur 6
Skógarlundur 6
210 Garðabær
215.7 m2
Einbýlishús
614
857 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Bílskúr
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Hlíðarvegur 42
625 Ólafsfjörður
248.2 m2
Einbýlishús
625
274 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin