Fasteignaleitin
Skráð 19. maí 2026

Sunnuvegur 13

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
267.2 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
270.000.000 kr.
Fermetraverð
1.010.479 kr./m2
Brunabótamat
137.600.000 kr.
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
202023711
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Bókið skoðun: Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

Einstaklega vandað og mikið endurnýjað 267 fm einbýlishús á þessum vinsæla stað við Sunnuveg. Mjög eftirsótt staðsetning í jaðri útivistarsvæðisins í Laugardal. Öll innanhússhönnun hefur verið í höndum Rutar Káradóttur og eru veglegar, sérsmíðaðar innréttingar í húsinu. Lóðin er afar falleg, sólrík og gróin með veglegum pöllum, skjólveggjum, heitum potti og matjurtargörðum. Fallegt Drápuhlíðargrjótið setur sterkan svip á aðkomuna að húsinu.


Skipulag eignar: Eignin telur eldhús, stofur, sex svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús, geymslur og bílskúr.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:
Jarðhæð:
Komið er inn í forstofu með góðu skápaplássi og fallegri, upprunalegri mósaíkflísalögn á gólfi. Snyrting er staðsett inn af forstofu með upphengdu salerni, innréttingu og góðum glugga. Gengið er úr forstofu inn í bjart og fallegt hol með náttúruflísum á gófli. Úr holi liggur fallegur, steyptur stigi með stálhandriði upp á efri hæð hússins. Miklir gluggar í stigaholi hleypa birtu inn í rýmið. Á jarðhæðinni eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfum auk tveggja samliggjandi herbergja með rennihurð á milli sem einnig eru parketlögð. Góð geymsla með hillum og þvottahús með innréttingu. 

Efri hæð:
Stigapallur efri hæðar er einstaklega bjartur með náttúruflísum á gólfi. Gólfhiti er í eldhúsi, borðstofu og baðherbergi á hæðinni. Eldhús er bjart og rúmgott með stórum gluggum, veglegri innréttingu sem sérsmíðuð var af Heggi. Kvartsteinn er á borðum og inni í skápum að hluta. Spanhelluborð og háfur, tvöfaldur ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og góðir tækjaskápar. Tæki eru frá Siemens. Úr eldhúsi er opið inn í bjarta borðstofu og stofu með útgengi á suðursvalir. Stórir gluggar og fallegt útsýni. Veglegt, gegnheilt parket er á gólfum og fallegur arinn prýðir stofuna. Loft á hæðinni eru að hluta niðurtekin með innfelldri lýsingu. Rúmgott sjónvarpshol er einnig á hæðinni með góðum glugga. Á svefnherbergisgangi eru tvö svefnherbergi auk hjónaherbergis með fataherbergi inn af. Parket er á gólfum. Rúmgott baðherbergi sem flísalagt er í hólf og gólf með innréttingu, steini á borðum, upphengdu salerni, baðkari, stórri sturtu og gluggum á tvo vegu. 
Góður, upphitaður bílskúr með rennandi vatni og rafmagni. Rafdrifin, nýleg bílskúrshurð. Einnig er inngangshurð við hlið anddyris. 
Lóðin:
Lóðin var öll endurnýjuð árið 2010 með fallegum gróðri, tyrfðum flötum og matjurtargarði. Stór hellulögð innkeyrsla og steypt stétt er fyrir fram húsið. Harðviðarverönd er til suðurs og vesturs með skjólveggjum og heitum potti.

Framkvæmdir og viðhald:
Húsið var teiknað af Gísla Halldórssyni, er steinsteypt og byggt árið 1961. Húsið hefur fengið gott viðhald alla tíð. Húsið var endurmúrað árið 2000 og hefur verið málað á 3-5 ára fresti. Á sama tíma var gler og gluggalistar endurnýjaðir, raflagnir og rafmagnstöflur, þakdúkur endurnýjaður og þakkantur álklæddur. Eldhús var endurnýjað árið 2015, neysluvatnslagnir árið 2019 og gestasnyrting árið 2021. 

Nánari upplýsingar:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarlundur 6
Bílskúr
Skoða eignina Skógarlundur 6
Skógarlundur 6
210 Garðabær
215.7 m2
Einbýlishús
614
857 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Bílskúr
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Hlíðarvegur 42
625 Ólafsfjörður
248.2 m2
Einbýlishús
625
274 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Faxatún 42
Bílskúr
Skoða eignina Faxatún 42
Faxatún 42
210 Garðabær
168.1 m2
Einbýlishús
413
Fasteignamat 125.950.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Huldubraut 21
Opið hús:07. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Huldubraut 21
Huldubraut 21
200 Kópavogur
223.3 m2
Einbýlishús
524
828 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin