Fasteignaleitin
Skráð 9. okt. 2026

Hraunbær 104

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
139.8 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.900.000 kr.
Fermetraverð
635.908 kr./m2
Brunabótamat
73.800.000 kr.
Byggt 1968
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20450103
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Miðbær fasteignasala kynnir eignina Hraunbær 104, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 204-5010 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Rúmgóð 4- 5 herbergja íbúð á frábærum stað miðsvæðis í Árbænum. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum. Eldhús, baðherbergi, gólfefni eru ljós parket og korkur á eldhúsi, flísar á baðherbergi. Gluggar eru í þrjár áttir sem gerir íbúðina sérlega bjarta. Tvennar svalir eru á íbúðinni og fallegt útsýni næst frá henni til suður og vesturs. Örstutt er í Árbæjarskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. 

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með ljósu parketi á gólfi, fataskápur. 
Stofa + borðstofa: Stofa og borðstofa eru saman í mjög rúmgóðu opnu rými, vinnuherbergi.  Góðir gluggar eru í tvær áttir og útgengi er út á vestursvalir. Mjög gott útsýni er frá stofunni bæði til suðurs og vesturs. 
Eldhús + borðkrókur: Eldhúsið er einnig mjög rúmgott. Innrétting er endurnýjuð í U. Rúmgóður borðkrókur er í eldhúsinu. 
Þvottaherbergi / búr: Innaf eldhúsinu er gott þvottaherbergi með glugga, geymsla/búr. 
Svefnherbergisgangur:
Baðherbergi:  Baðherbergið, flísalagt gólf og veggir, upphengt WC, innrétting, sturta. 
3 x herbergi: Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi. Gott skápapláss er í hjónaherberginu og barnaherbergjunum. Útgengi er úr hjónaherberginu á suðursvalir.
Geymsla: í sameign er önnur sér 4 fm geymsla sem fylgir íbúðinni. Geymslan er með hillum.
Nánari upplýsingar veitir Kristbjörn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali, í síma 692-3000, tölvupóstur ks@midbaer.is.

Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.
Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Umsýsluþóknun fasteignasölu kr.89.900 
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Miðbær fasteignasala
www.midbaer.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ólafsvegur 30
Efsta hæð
Skoða eignina Ólafsvegur 30
Ólafsvegur 30
625 Ólafsfjörður
114,3 m2
Fjölbýlishús
514
262 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 202
Bílastæði
Baughamar 5 íb. 202
221 Hafnarfjörður
116 m2
Fjölbýlishús
423
758 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Veghús 31
Opið hús:07. nóv. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Veghús 31
Veghús 31
112 Reykjavík
92,2 m2
Fjölbýlishús
412
747 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 6 íb. 402
Bílastæði
Apalskarð 6 íb. 402
221 Hafnarfjörður
120 m2
Fjölbýlishús
514
717 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin