Fasteignaleitin
Skráð 23. feb. 2026

Valshlíð 1 - 101

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
107.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
977.633 kr./m2
Fasteignamat
44.900.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2356504
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
norð-vestur pallur.
Upphitun
Hitaveita
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í Valshlíð 1, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.
Birt stærð er 107,3 m² þar af 6 m² geymsla í kjallara.

Þrír kaupmöguleikar í boði. 
* Hlutdeildarkaup 
* Þarft einungis 10% útborgun
* Búseturéttur 

* Suður verönd 11,6 m², og norður svalir.
* Quartz-steinn á borðum og milli skápa í eldhúsi
* Sér - þvottahús innan íbúðar
* Frábær staðsetning

Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:
Pálsson fasteignasölu, palsson@palssonfasteignasala.is S. 764-7474


Nánari lýsing:
Íbúðin er gegnumlýst og skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á tvennar svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 2.
Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum. Útgengi er út á suður verönd frá borðstofu og norður svalir frá stofu. 
Eldhús er með eyju. Ljós falleg eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa. Blöndunartæki úr burstuðu stáli.
Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum.
Svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í kjallara ásamt sameiginlegum hjóla- og vagnageymslum.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. 

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


ATH. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati. 
Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vallarbraut 6
Skoða eignina Vallarbraut 6
Vallarbraut 6
260 Reykjanesbær
91.1 m2
Fjölbýlishús
312
636 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Þverholt 19
Bílskúr
Skoða eignina Þverholt 19
Þverholt 19
230 Reykjanesbær
210.3 m2
Einbýlishús
514
546 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 508
Opið hús:22. mars kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 508
105 Reykjavík
93.4 m2
Fjölbýlishús
312
1027 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 222
Opið hús:22. mars kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 222
105 Reykjavík
54.2 m2
Fjölbýlishús
211
1131 þ.kr./m2
61.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin