Fasteignaleitin
Skráð 24. sept. 2026

Ásvellir 5 - 504

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
108.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
1.043.438 kr./m2
Fasteignamat
2.376.750.000 kr.
Mynd af Sigríður Rut Stanleysdóttir
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
5. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2517747_22
Landnúmer
229960
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir : Vandaðar nýjar 2-4ra herbergja íbúðir að Ásvöllum 3-9,  þar sem allt byggingarefnir uppfyllir ströngustu umhverfiskröfur.  Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins. sem tryggir hágæða innivist, frábæra hljóðvist og fullkomið loftskiptakerfi sem tryggir hreint loft og hámarks heilbrigði.
Glæsileg 108,2fm fjögurra herbergja íbúð á fimmtu hæð  (efstu)  merkt 504 í nýju 20 íbúða fjölbýlishúsi að Ásvöllum 5 ásamt stæði í bílgeymslu. Geymsla íbúðar er skráð : 14,8 fm.  Eignin skiptst í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, geymslu og stæði nr B16 í bílageymslu. Ásvellir 5 er nýtt 5 hæða fjölbýlishús sem er einstaklega vel staðsett við Haukaheimilið og Ásvallalaug. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.
Sjá Ásvellir
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut löggiltur fasteignasali í gsm : 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is 


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa góðum fataskáp frá GKS. 
Eldhús með fallegri innréttingu frá GKS. Helluborð frá BORA og önnur heimilistæki er frá AEG. Borðplöturn eru plastlagðar í gráum lit Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Eldhús er opið við stofu og borðstofu. 
Þvottahús / Búr er innaf eldhús með innrétting frá GKS. 
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með útgengi út á svalir.
 Hjónaherbergi með fataherbergi innaf, skápar frá GKS.
 Svefnherbergi með skápum frá GKS.
 Baðherbergi með walk in sturtu, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. 
Í kjallara er stæði nr B16 í lokaðri bílageymsla og góð sér geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur. 

Ásvellir 3-19 eru 7 byggingar og 9 stigahús með samtengdum bílakjallara neðanjarðar undir garði á milli húsanna. Ein innkeyrsla er í bílakjallarann og þar eru samtals 101 bílastæði ásamt sameiginlegu bílaþvottastæði. Auk bílastæða í bílakjallara eru 60 bílastæði á lóð.  Húsin eru staðsteypt, einangruð og klædd að utan með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Ásvellir skiptast í 9 stiga- og lyftuhús sem öll hafa aðgengi að bílakjallaranum úr sameign. Á jarðhæð eru aðalinngangar fyrir hvert stigahús fyrir sig. Á fyrstu hæð fylgja sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir sem fylgja öllum íbúðum. Í húsinu eru tveggja til fimm herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en með flísum á baðherbergjum og þvottahúsum. Með flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Sameign og lóð skilast fullfrágengin. Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en er ekki talinn upp í skilalýsingu fylgir ekki. 

Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins.  Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur. Nánari upplýsingar um Svansvottun má finna á heimasíðu umhverfismerkisins Svansins https://svanurinn.is/voruflokkar/byggingar
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar kröfur Svansins eins og t.d. gólfefni, undirlag, málning og kítti. Byggingarefni sem er umhverfisvottað og er með einhvern af þessum stimplum á umbúðunum uppfyllir sjálfkrafa kröfur Svansins. Ef ekki er stimpill til staðar er hægt að spyrja sölumenn hvort efnið sé leyfilegt til notkunar í Svansvottuð hús. 



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásvellir 3
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:15. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Ásvellir 3
Ásvellir 3
221 Hafnarfjörður
113,5 m2
Fjölbýlishús
413
995 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 7 íb. 509
Baughamar 7 íb. 509
221 Hafnarfjörður
95,5 m2
Fjölbýlishús
413
791 þ.kr./m2
75.500.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 8B íb. 102
Bílastæði
Apalskarð 8B íb. 102
221 Hafnarfjörður
96,6 m2
Fjölbýlishús
43
776 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Unufell 48
Hleðslustöð
Opið hús:20. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Unufell 48
Unufell 48
111 Reykjavík
97 m2
Fjölbýlishús
413
669 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin