Hús fasteignasala og Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna eignina Engjavík 12, 800 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 252-5343 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
** Eignin er laus við undirritun kaupsamnings **
Bjart og vel skipulagt 99,3 fm raðhús með þremur svefnherbergjum. Eignin er með góðu skipulagi þar sem áhersla er lögð á rúmgóð og notaleg alrými.
Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Eldhús og stofa eru í opnu og björtu alrými. Úr stofu er útgengt út í garð.
Svefnherbergin eru þrjú og eru fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergið er snyrtilegt, með walk-in sturtu, upphengdu salerni, fallegri innréttingu og handklæðaofni. Sér þvottahús er í eigninni með innréttingu sem veitir gott vinnu- og geymslupláss.
Harðparket er á gólfum í helstu rýmum eignarinnar en flísar eru á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Helstu atriði:
99,3 fm raðhús
Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum
Eldhús og stofa í opnu alrými
Útgengt úr stofu út í garð
Forstofa með fataskáp
Sér þvottahús með innréttingu
Baðherbergi með walk-in sturtu og upphengdu salerni
Handklæðaofn á baðherbergi
Harðparket á helstu rýmum
Flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi
Innkeyrsla er hellulögð og garður gróinn.
Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.