Fasteignaleitin
Skráð 23. feb. 2026

Fálkahlíð 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
198.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
189.500.000 kr.
Fermetraverð
954.660 kr./m2
Brunabótamat
122.940.000 kr.
Byggt 2020
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25056788
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg 198,5 m² penthouse íbúð við Hlíðarenda með tvennum svölum, bílskúr og stæði í bílageymslu. Einstaklega vönduð og glæsileg íbúð með sérsmíðuðum innréttingum, gólfsíðum gluggum, gólfhita og aukinni lofthæð. Íbúðin er laus til afhendingar.

Bókið skoðun: Lilja s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

**Sækja söluyfirlit**


Eignin er skráð 198,5 fm. Þar af er geymslan skráð 27,1 fm og bílskúr er skráður 30,3 fm. Eignin samanstendur af forstofu, stofu, borðstofu, eldhúsi, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, rúmgóðu barnaherbergi/skrifstofu, baðherbergj og þvottahúsi auk geymslu, bílskúrs og stæðis í lokaðri bílageymslu. Tvennar svalir til vesturs og austurs.

Nánari lýsing:
Gengið er inn í rúmgott anddyri með stórum fataskáp sem nær upp í loft. 
Eldhús er opið við borðstofu og stofu. Eldhúsið er með vönduðum, sérsmíðuðum innréttingum  frá HBH, kvartsít steinplötum frá Fígaró á bekkjum innréttingar og eyju. Eyja skilur að eldhús og borðstofuna. Vönduð eldhústæki frá Miele og háfur frá Elica.
Borðstofa, stofa og eldhús eru í stóru, opnu rými með gólfsíðum gluggum og útgengi á stórar svalir sem vísa til suðausturs.  
Hjónasvítan er stór og björt. Fataherbergi með góðum innréttingum sem ná upp í loft. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, rúmgóðri sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Útgengi er úr hjónasvítu á vestursvalir sem snúa inn í fallegan inngarð. Einnig er útgengi á sömu svalir af svefnherbergisgangi sem er bjartur og rúmgóður. 
Barnaherbergi er rúmgott með góðum skáp sem nær upp í loft. Flísalagt baðherbergi á svefnherbergisgangi er rúmgott með innréttingu, stórri sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Við hlið baðherbergis er þvottahús með innréttingu, vinnuaðstöðu, vaski og flísum á gólfi. Veglegt eikarparket er á allri íbúð utan votrýma þar sem eru flísar.
Í lokaðri bílageymslu er 30,3 fm bílskúr sem tilheyrir íbúðinni. Inn af bílskúr er mjög rúmgóð geymsla sem hægt er nýta með ýmsum hætti. Stæði fyrir framan bílskúr er sérmerkt íbúð.
Inngarðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður með góðri lýsingu, bekkjum og leiksvæði fyrir börn.

Frekari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignsali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Haukahlíð 2
Skoða eignina Haukahlíð 2
Haukahlíð 2
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2 - íbúð 320
Haukahlíð 2 - íbúð 320
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarhlíð 4
Bílastæði
Opið hús:21. júlí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Arnarhlíð 4
Arnarhlíð 4
102 Reykjavík
131.2 m2
Fjölbýlishús
413
914 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 12
Valshlíð 12
102 Reykjavík
78 m2
Fjölbýlishús
211
1024 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin