Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2026

Nökkvavogur 48

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
71 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
815.493 kr./m2
Brunabótamat
37.050.000 kr.
Byggt 1948
Kjallari
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20229844
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Um er að ræða vel skipulagða 2ja - 3ja herbergja neðri hæð (geymsla innan íbúðar hefur verið nýtt sem svefnherbergi) með sérinngangi (eigendur efri hæðar hafa aðkomurétt í þvottahúsið) í tvíbýlishúsi við Nökkvavog 48, 104 Reykjavík. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er Íbúðin skráð 71 fm. Sérinngangur - íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð að innan - stór verönd - hiti í gólfi á anddyri og baðherbergi - nýleg gólfefni og innréttingar. Ekkert formlegt húsfélag er starfrækt í húsinu. LAUS TIL AFHENDINGAR.

Eignaskiptasamningur: Eignin er íbúð í kjallara: Íbúð 00-01, birt stærð 71 fm. Eigninni tilheyrir hlutdeild í matshluta 01. Hitagrind og inntök eru í þvottahúsi eignar 0001, sem eigendur eignar 0101 hafa aðkomurétt að. Rafmagnsinntak og aðaltafla eru í geymslu eignar 0001, sem eigendur eignar 0101 hafa aðkomurétt að. 

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu, flísar á gólfi. Innaf forstofunni er þvottahús með innréttingu og glugga. Björt stofa og eldhús í opnu rými með parketi á gólfi. Frá stofu / eldhúsi er útgengt út á steypta rúmgóða verönd. Í eldhúsinu er innrétting með miklu skápaplássi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með í kaupunum, parket á gólfi í eldhúsi. Innréttingin í eldhúsinu er frá Ikea og borðplatan frá Fanntófell. Rúmgott svefnherbergi með fataskáp, parket. Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu, hita í gólfi, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Parketlögð geymsla sem hefur verið nýtt sem svefnherbergi

Útitröppur við inngang voru steyptar árið 2021
Skipt um járn á þaki árið 2008 og þak málað árið 2019. 
Þakkantur og álrennur endurnýjaðar árið 2018.
Baðherbergi og anddyri endurnýjað 2017 og settur gólfhiti. 
Árið 2015-2017 voru neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Ofnalagnir endurnýjaðar árið 2013.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Síðumúli 39
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
73.5 m2
Fjölbýlishús
211
932 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Langimói 7 íbúð 102
Langimói 7 íbúð 102
603 Akureyri
51.4 m2
Fjölbýlishús
211
971 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grænakinn 19
Opið hús:26. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grænakinn 19
Grænakinn 19
220 Hafnarfjörður
90 m2
Fjölbýlishús
312
758 þ.kr./m2
68.200.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 Íbúð 105
Baughamar 5 Íbúð 105
221 Hafnarfjörður
92.1 m2
Fjölbýlishús
312
749 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin