Fasteignaleitin
Skráð 24. júní 2026

Frjóakur 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
270.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
200.900.000 kr.
Byggt 2007
Heitur pottur
Á einni hæð
Fasteignanúmer
22959286
Húsgerð
Einbýlishús

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegt 270 fm einbýlishús á góðum stað í Akrahverfinu. Bjartar stofur með aukinni lofthæð (3,6m) og glæsilegum gasarni, sérsmíðað eldhús frá Heggi og fallegur garður með nýlegum pöllum, skjólveggjum og heitum potti. Falleg 18,5 fm garðstofa með lokun og hita undir hellum sem ekki er hluti af skráðum fermetrum eignar. Vegleg hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi. Að auki eru þrjú rúmgóð barnaherbergi og tvö baðherbergi. Gólfhiti er í öllu húsinu og vel hefur verið hugað að hljóðvist. Húsið er allt á einni hæð og innangengt er í bílskúr.

Eignin er skráð 270,4 fm og skiptist í eldhús, stofur, fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, þrjú baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. 

Bókið einkaskoðun:
Kjartan: 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Lilja: 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is


**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:
Forstofa: Mjög björt forstofa með flísum á gólfi og sérsmíðaðir skápar frá Heggi. 
Eldhús: Afar vönduð svartbæsuð eikarinnrétting sem sérsmíðuð er af Heggi. Mikil og vegleg eyja með fallegum stein á borði og helluborði. Tvöfaldur ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Mikið skápapláss er í eldhúsi. 
Stofur: Bjartar og mjög rúmgóðar með mikilli lofthæð (3,6m) og gólfsíðum gluggum. Fallegt hnotuparket er á gólfi. Veglegur gasarinn setur svip sinn á rýmið en arinveggurinn er allur klæddur náttúrustreini frá Fígaró. Vel er hugað að hlóðvist í rýminu. Útgengi er frá stofu út í 18,5 fm garðstofu með svalalokun og hita undir hellum. Þetta rými er ekki hluti af skráðum fermetrum eignar. Þaðan er svo útgengi út í fallegan garð með nýlegum lerkiskjólveggjum, pöllum og heitum potti.
Sjónvarpshol: Ágætt sjónvarpshol er stúkað af við svefnherbergisgang. 
Hjónasvíta: Hjónasvítan er rúmgóð (um 30 fm) með fataherbergi og baðherbergi. Baðherbergi er flísalagt með upphengdu salerni, innréttingu og walk-in sturtu. 
Barnaherbergi (3): Öll barnaherbergin eru mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum og hnotuparketi á gólfi. Tvö þeirra eru staðsett á svefnherbergisgangi. Eitt er staðsett inn af forstofu.
Baðherbergi: Staðsett á svefnherbergisgangi. Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu, baðkari og walk in sturtu. Góður opnanlegur gluggi. 
Baðherbergi: Staðsett á gangi nálægt forstofu. Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu og walk in sturtu. 
Þvottahús:Rúmgott með góðri innréttingu og flísum á gólfi. Innangengt er úr þvottahúsi í geymslu og bílskúr.
Geymsla: Rúmgóð með góðum skápum og aukainngangi.
Bílskúr: Mjög góður 39 fm bílskúr með flísum á gólfi og rafknúinni bílskúrshurð. Innangengt er í bílskúr.
Lóð: Lóðin er glæsileg og fullfrágengin. Fallegur garður með nýlegum lerkiskjólveggjum, pöllum og heitum potti. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslukerfi. Stæði fyrir allt að fjóra bíla á bílaplani.

Frábær eign á góðum stað í þessu vinsæla hverfi í Garðabæ. Stutt er í alla þjónustu, skóla og frístundir.

Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson - Löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir - Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langabrekka 26
Bílskúr
Skoða eignina Langabrekka 26
Langabrekka 26
200 Kópavogur
261.8 m2
Einbýlishús
634
725 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Árakur 9
Bílskúr
Skoða eignina Árakur 9
Árakur 9
210 Garðabær
248.9 m2
Raðhús
514
828 þ.kr./m2
206.000.000 kr.
Skoða eignina Eikardalur 10
Heitur pottur
Opið hús:27. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Eikardalur 10
Eikardalur 10
260 Reykjanesbær
259 m2
Einbýlishús
625
502 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Blikanes 20
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Blikanes 20
Blikanes 20
210 Garðabær
563.6 m2
Einbýlishús
845
Fasteignamat 305.300.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin