Fasteignaleitin
Skráð 4. sept. 2026

Dýjagata 16

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
396.7 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
349.000.000 kr.
Fermetraverð
879.758 kr./m2
Fasteignamat
266.250.000 kr.
Brunabótamat
223.000.000 kr.
Mynd af Hilmar Arnarson
Hilmar Arnarson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2015
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2329768
Landnúmer
212013
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já - útsýni
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Vatn virðist komast inn að einangrun á einum vegg. Berst þó ekki inn í eignina samkvæmt seljanda.
Hilmar Arnarson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Eign í  sérflokki við Dýjagötu í Urriðaholti. Húsið er 396,7 fm með þreföldum 60fm bílskúr og stendur á stórri lóð með gríðarlega fallegu útsýni yfir óskerta náttúru og Urriðavatn. Húsið einkennist af einstaklega fallegum arkitektúr sem gefur því reisulegt og fallegt yfirbragð. Í dag eru í húsinu tvær íbúðir en auðvelt er að sameina núverandi íbúð aðal íbúðarrýminu með einfaldri framkvæmd. Lóð er mjög stór eða 1.594 fm með byggingarrétt fyrir allt að 880 fm hús. Arkitekt hússins er Kári Eiríksson.
 
*** Nánari upplýsingar veitir Hilmar Arnarson lgf. 823-3673 og hilmar@remax.is ***
Endilega bókið skoðun


Helstu upplýsingar um eignina:
 * Gólfhiti er í öllu húsinu með hitastýringu í hverju rými.
 * Fataskápar og eldhúsinnrétting eru úr hnotu.
 * Þaksvalir og einstakt útsýni yfir Urriðavatn.
 * Aukaíbúð og þrefaldur bílskúr 
 * Lagt er fyrir öryggismyndavélum.
 * Hágæða ál/trégluggar og hurðir með öryggisgleri, margir gluggar mjög stórir, innihurðir með aukinni hæð.
 * Ryksugukerfi, sem inniheldur; ryksugu, barka og fylgihluti.
 * 10 útgöngudyr með þjófheldum læsingum og lömum.
 * Staðsetning í hverfinu er einstök. Neðsta gatan niður við óbyggt svæði og Urriðavatnið en þó með greiða og fljótlega leið út á stofnbraut.
 * Stutt er í golf á Urriðavöll einn glæsilegasta golfvöll landsins.
 
Nánari lýsing:
Aðal hæð: Hækkun er á öllum hurðaropum og vandaðar flísar á gólfum og baðherbergjum, allar hurðir, fataskápar og eldhúsinnrétting eru úr hnotu.
Forstofa með stórum fataskáp.
Hol tengir hæðir með stigaopi, stigi er lagður vönduðu kókosteppi með mjúku undirlagi sem gerir hann einstaklega hlýlegan, vandað smíðajárnshandrið gefur stigaganginum fallegt yfirbragð. Úr holi er útgengi á stórar suð-austur svalir.
Eldhús með vandaðri sérsmíðaðri íslenskri innréttingu úr hnotu frá Smíðaþjónustunni.  Steinn á borðum frá Rein og vönduð tæki.
Borðstofa er björt og rúmgóð með útgengi á stórar suður svalir með einstöku útsýni.
Stofa er björt með miklum síðum gluggum og mikilli lofthæð sem gerir hana einstaklega glæsilega, útgangur er á stórar svalir í suð-austur fallegur arinn er milli stofu og borðstofu sem nýtur sín vel í báðum rýmunum. Fallegur og nútímalegur arinn prýðir rýmið.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum stórum fataskápum úr hnotu. Inn af hjónaherbergi er baðherbergi flísalagt vönduðum flísum, hvít innrétting og flísalagður sturtuklefi.
Gestasnyrting með lítilli hvítri innréttingu, flísalagt gólf og hluti veggjar.
Þvottahús með góðri hvítri innréttingu og skolvaski, innangengt í bílskúr úr þvottahúsi.
Bílskúr er þrefaldur með gólfhita, 3ja fasa rafmagni og ryksugukerfi, ryksuga, barkar og fylgihlutir fylgja kerfinu.  Innaf bílskúr er mjög rúmgott rými sem nýta má sem vinnuherbergi eða geymslu.  Utan á húsinu er tengill fyrir rafbíl.

Efri hæð:
Pallur sem nýtist vel sem herbergi, vinnu- eða skrifstofurými. Útgengt á þaksvalir með ótrúlegu útsýni.

Neðri hæð:
Opið rými sem nýtt er sem sjónvarpsstofa.  Þaðan liggur útgangur á lóð.
Herbergi er á hæðinni mjög rúmgott og með fataskáp.
Baðherbergi með hvítri innréttingu, flísum á gólfi, stór sturtuklefi með glervegg og tengi fyrir þvottavél.
Tvær geymslur eru á hæðinni.  Önnur um 3fm og hin um 20fm með sérinngang utan frá.
Forstofa með fatahengi.
Eldhús með góðri hvítri innréttingu og tækjum.
Stofurými er bjart og rúmgott.
Svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með hvítri innréttingu og flísuðu gólfi stór sturtuklefi með glervegg.
 
Öll helsta þjónusta er til staðar í Urriðaholti s.s. leikskólar, grunnskólar, leikvellir, fallegar gönguleiðir og Kauptúnið.

Ath. Seljandi skoðar uppítöku á öðrum eignum.
Ath. Notast var við aðstoð gervigreindar til sýna hvernig ákveðin rými myndu líta út með húsgögnum, þar sem eignin var mynduð án húsgagna.

 
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson löggiltur fasteignasali hilmar@remax.is sími 823-3673.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2015
67.1 m2
Fasteignanúmer
2329768
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
28.050.000 kr.

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víkurgata 3
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Víkurgata 3
Víkurgata 3
210 Garðabær
228.9 m2
Raðhús
524
872 þ.kr./m2
199.500.000 kr.
Skoða eignina Huldubraut 21
Heitur pottur
Skoða eignina Huldubraut 21
Huldubraut 21
200 Kópavogur
223.3 m2
Einbýlishús
524
828 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnubraut 46
Sunnubraut46_aðalmynd.jpg
Skoða eignina Sunnubraut 46
Sunnubraut 46
200 Kópavogur
335.6 m2
Einbýlishús
633
Fasteignamat 197.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hólmatún 9
Bílskúr
Heitur pottur
e
Skoða eignina Hólmatún 9
Hólmatún 9
225 Garðabær
160.4 m2
Raðhús
513
810 þ.kr./m2
129.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin