Hrönn Ingólfsdóttir lgfs. kynnir: Einstaklega glæsilegt og vel hannað einbýlishús með rúmgóðum bílskúr við Laxatungu 139 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð alls 239,5 fm að stærð og þar af er bílskúrinn 46,6 fm.
Eignin skiptist þannig: Forstofa, tvö baðherbergi, sjónvarpsherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Fjögur góð svefnherbergi ásamt rúmgóðu þvottahúsi og bílskúr. Einstaklega fallegur og vel hannaður garður með góðum pöllum og heitum potti. Allt timbur í pöllum er úr lerki.
Hiti er í öllum gólfum í húsinu. Þetta er frábærlega vel staðsett eign rétt við voginn. Einstakt útsýni er til fjalla frá húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@fasteignaland.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Eldhús: Rúmgóð og falleg hvít innrétting með eyju. Flísar á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum á tvo vegu. Mikil lofhæð og innfelld lýsing. Útgengt á pall til austurs / suður. Parket á gólfi.
Borðstofa: Mikil lofhæð og innfelld lýsing. Stór rennihurð út á pall til vesturs. Parket á gólfi.
Sjónvarpsrými: Rúmgott, mikil lofhæð og innfelld lýsing. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með útgengi út á pall til austurs / suður.
Fataherbergi. Innfelld lýsing í lofti. Parket á gólfi.
Herbergi 1: Rúmgott, parket á gólfi, þrefaldur fataskápur.
Herbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi. Fataskápur.
Herbergi 3: Rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbegi 1: Flísalagt að hluta. Rúmgóð hvít innrétting, útgengt á pall með heitum potti. Handklæðaofn, upphengt salerni.
Baðherbergi 2: Flísalagt að hluta. Fín innrétting, rúmgóð sturta, handklæðaofn, upphengt salerni.
Þvottahús: Rúmgott, stór innrétting með hólfum fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og gluggi með opnanlegu fagi. Flísar á gólfi. Möguleiki á að breyta þessu rými í fimmta herbergið.
Bílskúr: Mjög rúmgóður bílskúr með mikilli lofthæð. Steypt bílaplan.
Þetta er eign sem vert er að skoða á frábærum stað í Mosfellsbæ. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.