Fasteignaleitin
Skráð 22. ágúst 2025

Gnoðarvogur 38

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
74.7 m2
3 Herb.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
54.600.000 kr.
Brunabótamat
41.400.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2022461
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Svalir
Inngangur
Sérinngangur
Einstaklega falleg 3ja herbergja nýuppgerð íbúð á 1. hæð við Gnoðarvog 38.
Vinsæl staðsetning í námunda við Laugardalinn.


Á gólfum íbúðar er glænýtt fljótandi ljóst harðparket nema á baðherbergi þar sem eru flísar. Ný ljós eru í öllum rýmum íbúðar og fylgja þau með.
Þá eru nýjar hurðir og karmar. Eignin er öll nýmáluð í litnum hafgrár frá Sérefni.
Forstofa sem jafnframt er miðja íbúðarinnar. Þar er rými fyrir fatahengi eða skáp.
Stofa með stórum gluggum og útgengi á einkasvalir.
Eldhús með nýrri innréttingu, innbyggðum ísskáp og frysti, span eldavél, ofni og uppþvottavél. Borðplata er úr Dekton rem steini frá Steinsmiðjunni Rein.
Baðherbergi með baðkari/sturtu. Flísar á veggjum og gólfum. Ný blöndunartæki, nýr vaskaskápur og nýr speglaskápur.
Svefnherbergi nr. 1 snýr í vestur og er milli stofu og eldhúss. Það er minna en hitt svefnherbergið og hentar því vel sem barnaherbergi.
Svefnherbergi nr. 2 snýr í austur og er hliðina á baðherberginu. Þar er rúmgóður krókur sem hægt er að nýta fyrir kommóðu og/eða skáp.
Geymsla er í kjallara og er hún 6,6 fermetrar. Hún er nýmáluð, bæði veggir og loft.

Íbúðin er einstaklega vel staðsett í rólegu og barnvænu umhverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
 
Leiguverð á mánuði er 365.000 kr. Hiti er innifalinn í leiguverði en ekki rafmagn.
 
2 mánaða leigutrygging skilyrði.
 
Íbúðin er laus strax.
 
Áhugasamir geta sent tölvupóst á bjartur@bjarturfasteign.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/02/202554.600.000 kr.49.000.000 kr.74.7 m2655.957 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Bjartur fasteignasala
http://www.bjarturfasteign.is

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Blönduhlíð 33
Til leigu
Skoða eignina Blönduhlíð 33
Blönduhlíð 33
105 Reykjavík
88.2 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 69.700.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Bifröst Sjónarhóll
Til leigu
Bifröst Sjónarhóll
311 Borgarnes
76.3 m2
Fjölbýlishús
3
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 10
Til leigu
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík
80 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Skoða eignina Lágmúli 4
Til leigu
Skoða eignina Lágmúli 4
Lágmúli 4
108 Reykjavík
65 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin