LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna endaraðhús á vinsælum stað í Árbænum. Húsið er skráð 337,7 fm að stærð, þar af 40 fm bílskúr og 40 fm geymsla undir bílskúr. Eignin er með auka íbúð í kjallara sem hægt er að leigja út.
Lóðin að framan er graslögð og snyrtileg. Bakgarðurinn er stór og þar er upplagt að njóta kvöldsólarinnar og útsýnis yfir Elliðaár, Fossvog, Breiðholt og víðar auk þess sem Esjan og Snæfellsjökull sjást vel.
Stutt er í útivistarsvæði við Rauðavatn, Heiðmörk og Elliðaárdal auk þess sem Fylkisvöllur, Árbæjarlaug og Árbæjarskóli eru í seilingarfjarlægð.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.is
Eignin skiptist eftirfarandi:
Jarðhæð:
Gengið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum rúmgóðum skápum. Inn af forstofu er lítið gestabaðherbergi.
Þegar inn er komið tekur við beykiparket á eldhúsi, búri, borðstofu og setustofu en í arinstofu eru steinflísar. Gengið er út á svalir frá arinstofu.
Önnur hæð og loft:
Tréstigi er upp á aðra hæð þar sem parket er á öllum gólfum ef undan er skilið rúmgott baðherbergi með gólfkorki. Baðkar er á baðherberginu. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni og eru góðir innbyggðir skápar í tveimur þeirra. Í öðru herbergjanna er gengið út á efri svalir. Tvö minni barnaherbergi hafa svefnloft, enda er lofthæð rífleg á hæðinni.
Sjónvarpshol er fyrir miðju hæðar og fyrir ofan það er gott vinnuloft með þakglugga og góðri birtu.
Bílskúr og geymsla:
Bílskúr og geymsla standa sjálfstætt fyrir framan sjálft húsið. Bílastæði fyrir þrjá bíla eru við bílskúr. Bílskúrinn er 40 fm, undir bílskúrnum er ca.40 fm rými sem hægt er að nýta sem vinnustofu og fl.
Kjallari:
Gólfkorkur er á kjallara ef undan er skilið þvottahús þar sem sömu flísar og að ofan er á gólfi. Í dag er kjallarinn sér íbúð í útleigu. Kjallarinn er með tveimur sér inngöngum auk þess sem innangegnt er í kjallara frá efri hæð. Hurð á milli hæða hefur verið sérstaklega einangruð.
Þvottahúsi hefur verið breytt í eldhús en auðvelt er að breyta því tilbaka. Inn af þvottahúsi/eldhúsi er gengið út í bakgarð.
Stór stofa er í kjallara. Frá stofu er gengið inn í forstofu. Þar er að finna lítið herbergi/geymslu og lítið baðherbergi með sturtu.
Ennfremur hefur verið útbúinn svefnherbergiskrókur inn af stofu.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.