Borg fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 1. hæð við Arnarsmára í Kópavogi. Um er að ræða bjarta og fjölskylduvæna eign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og aðra helstu þjónustu.
Íbúðin skiptist í forstofu, tvö barnaherbergi, rúmgott hjónaherbergi, bjarta stofu með útgengi á timburpall, eldhús, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla fylgir eigninni í sameign.Nánari lýsing:Forstofa er með harðparketi og góðu rými fyrir yfirhafnir og skó.
Barnaherbergi I er með harðparketi og fataskáp.
Barnaherbergi II er með harðparketi.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með harðparketi.
Eldhús er með viðarinnréttingu, harðparketi og góðu vinnurými.
Stofa er björt og rúmgóð með harðparketi og útgengi á sólríkan timburpall sem býður upp á notalega útiveru.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og baðkari.
Þvottahús er innan íbúðar og flísalagt.
Sérgeymsla er í sameign.
Hér er um að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna eign á vinsælum stað í Kópavogi þar sem öll helsta þjónusta, skólar, leikskólar, útivistarsvæði og góðar samgöngur eru í næsta nágrenni.
Eignin er laus til afhendingar með stuttum fyrirvara.