Fasteignaleitin
Skráð 19. júní 2026

Fornistekkur 20

SumarhúsVesturland/Akranes-301
47.6 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
27.900.000 kr.
Fermetraverð
586.134 kr./m2
Brunabótamat
26.600.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
22276631
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna eignina Fornistekkur 20, Hvalfjarðarsveit.  Fallegt og vel staðsett sumarhús með hitaveitu í landi Bjarteyjarsands í norðanverðum Hvalfirði.  Húsið stendur hátt í brekku með góðu útsýni yfir Hvalfjörðinn. Vel skipulagt hús með góðum sólpalli, skjólveggjum og heitum potti. Kjarri vaxin lóð um kring. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

** Eignin seldist á viku, er með kaupendur að sambærilegu sumarhúsi stutt frá Reykjavik **

Nánari lýsing: 
Stofa/borðstofa: opið rými við eldhús, rúmgott og bjart með útgengi á skjólgóða aflokaða timburverönd. Gluggar á þrjá vegu. Glæsilegt útsýni. Parket.
Eldhús: ágæt innrétting, helluborði með tveimur hellum. Stæði fyrir lítinn ísskáp. Parket.
Svefnherbergi: eru tvö ( möguleiki að bæta við herbergi.)  Kojur í minna herbergi.  Parket.
Baðherbergi: sturtuklefi, handlaug. Opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi.
Anddyri: er rúmgott með góðu fatahengi. Flísar á gólfi.
Geymsluloft: yfir hluta herbergja er geymsluloft. 
Sólpallur: við húsið er skjólgóð aflokuð timburverönd með heitum potti og rúmgóðu fjölskyldusvæði fyrir matborð og grill. 

Áætlaður rekstrarkostnaður: 
Lóðarleiga: kr 106.000 pr ár. 
Hitaveita: kr 24.000 ótakmarkuð notkun, greitt annan hvern mánuð.
Fasteignagjöld: kr 124.185 pr ár. 
Brunatrygging: kr 35.452 pr ár.
Félag sumarbústaðareigenda: kr 30.000 pr ár.

Húsið stendur á leigulóð ca hálfur hektari að stærð í skipulagðri sumarhúsabyggð. Gróið land. Gott aðgengi og rúmgott bílastæði.  Húsið selst með innbúi utan persónulegra muna. Svæðið er lokað með rafmagnshliði (fjarsýring) sem tryggir gott næði og öryggi. Hér er um að ræða vel staðsett sumarhús með hitaveitu og góðu útsýni örstutt frá borginni. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703. 
     


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ennisbraut 5
Skoða eignina Ennisbraut 5
Ennisbraut 5
540 Blönduós
75.9 m2
Atvinnuhúsn.
1
316 þ.kr./m2
24.000.000 kr.
Skoða eignina Vatnsendahlíð 98
Vatnsendahlíð 98
311 Borgarnes
61.1 m2
Sumarhús
412
571 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Skoða eignina Stóraborg 13
Skoða eignina Stóraborg 13
Stóraborg 13
311 Borgarnes
83.8 m2
Sumarhús
211
715 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarás 9
Skoða eignina Skógarás 9
Skógarás 9
311 Borgarnes
59.8 m2
Sumarhús
413
550 þ.kr./m2
32.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin