Skráð 2. feb. 2026

Vatnsendahlíð 98

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
61.1 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
34.900.000 kr.
Fermetraverð
571.195 kr./m2
Fasteignamat
21.900.000 kr.
Mynd af Árni Björn Erlingsson
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Byggt 2007
Geymsla 6.1m2
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2295519
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur
Upphitun
Rafmagns
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Gallar
Vakin er athygli á því að húsið er skráð á byggingarstig B2, fokhelt, og matstigi 4, fokheld bygging. Í húsinu er hitakútur sem mögulega er kominn tími á að endurnýja, komin er tími á að bera á húsið, þessi upptalning þarf ekki að vera endanleg, og mælum við með að skoða eignina með fagmanni.
Stórkostlegt útsýni út á Skorradalsvatn og allt í kring.

Árni B.Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Vatnsendahlíð 98, Skorradalshreppi, nánar tiltekið eign með fastanúmer 229-5519 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarleiguréttindi. 

Um er að ræða sumarhús á góðum stað í nálægð við Skorradalsvatn, tvö svefnherbergi, stór stofa, eldhús sem flæða saman í eina heild ásamt borðstofukrók (sem var á upphaflegu teikningunni þriðja herbergið), og baðherbergi með sturtu. Sólpallur nær allan hringinn í kring um bústaðinn. Lóðin er kjarri vaxin og fallegt leiksvæði fyrir börn. Rúm bílastæði eru við bústaðinn og er hann stutt frá aðalvegi sem býður uppá betri nýtingu allt árið. Húsið hefur ekki verið í mikilli notkun undanfarin ár og er kominn tími að viðhald að utan og nýtt fólk til að dekra við þessa flottu eign.

Birt stærð eignarinnar samkvæmt HMS er 61.1 fm.

Lýsing eignar:
Forstofa: Rúmgóð forstofa sem á eftir að setja endanlegt gólfefni. 
Baðherbergi: Með upphengdu salerni, nettri innréttingu og parket á gólfi. Gluggi er á baðherberginu og stór sturta.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi. (gert var ráð fyrir þriðja herberginu á teikningu, en það er nú nýtt sem borðkrókur.)
Eldhús:  Parket á gólfi með viðar innréttingu.
Stofa: Parket á gólfi og með útgang út á stóra timburverönd. Góð lofthæð.

Geymsla: er 6 fm einangruð en á eftir að klæða að innan (timbur gólf, rafmagn).

Upplýsingar um rekstrarkostnað frá eigendum:
Lóðaleiga: 205.000 kr á ári.
Félagsgjald sumarbústaðareigenda: um 21.000 kr á ári.


Skorradalur, er umvafin fjöllum, skógi og vatni, og býður upp á einstaklega fallegt útsýni. Þá er staðurinn þekktur fyrir mikla veðursæld og fegurð. Um klukkutíma akstur er frá Reykjavík. Góð aðkoma frá Skorradalsvegi og stutt í Borgarnes þar sem öll helsta þjónusta er aðgengileg. Stutt er í náttúruperlur, og sund, golf, Hraunfossa, Krauma, Reykholt og Húsafell. Einnig má nefna veiði, göngu, hjólreiðar og annað sumarsport.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / arni@fasteignaland.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2006
0.6 m2
Fasteignanúmer
2295519
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrarholt 22
Skoða eignina Mýrarholt 22
Mýrarholt 22
311 Borgarnes
67.6 m2
Sumarhús
412
501 þ.kr./m2
33.900.000 kr.
Skoða eignina Hólmasund 4
Skoða eignina Hólmasund 4
Hólmasund 4
805 Selfoss
69.6 m2
Sumarhús
42
517 þ.kr./m2
36.000.000 kr.
Skoða eignina A-Gata 4
- - LÆKKAÐ VERÐ - -
Skoða eignina A-Gata 4
A-gata 4
805 Selfoss
57.6 m2
Sumarhús
12
597 þ.kr./m2
34.400.000 kr.
Skoða eignina Kjarrmói 14
Skoða eignina Kjarrmói 14
Kjarrmói 14
805 Selfoss
65 m2
Sumarhús
212
522 þ.kr./m2
33.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin