Fasteignaleitin
Skráð 20. okt. 2026

Kolbrúnargata 3 (102)

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
115 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.500.000 kr.
Fermetraverð
795.652 kr./m2
Fasteignamat
31.650.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Byggt 2026
Jarðhæð
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25349751_1
Landnúmer
229836
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd í suðurátt
Upphitun
Sameiginlegur hiti
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Stofnskjal lóðar, sjá skjal nr. 411-A-000618/2003. Stofnskjal lóðar, sjá skjal nr. 411-U-004700/2007. Stofnskjal lóðar, sjá skjal nr. 411-S-011151/2007. Lóðamarkabreyting, sjá skjal nr. 441-H-002130/2023. Kvöð, sjá skjal nr. 411-S-010236/2013. Lóðarleigusamningur, sjá skjal nr. 441-A-008811/2025. Sú kvöð hvílir á eigninni að sá sem kann að eignast réttindi Hamla 1 ehf og Landsbankans er bundinn af því að inna af hendi greiðslu gatnagerðagjalds, sjá skjal. Kvöð, sjá skjal nr. 441-D-006274/2021. Handhöfum byggingarréttar er heimilt að veðsetja byggingarrétt sinn að einstökum lóðum þegar lóðarleigusamningur hefur verið gefinn út af Mosfellsbæ.- Veðsetning nær til lóðarleiguréttinda skv. lóðarleigusamningi svo og þeirra mannvirkja sem á lóðinni munu rísa. sjá um kvaðir í gr. 2.4 og 2.5. - Kvöð v/ almennra sölu- og byggingarskilmála.

Eignin skal afhent í samræmi við skilalýsingu í söluyfirliti sem tilboðsgjafi hefur kynnt sér og skoðast það sem hluti af kauptilboði þessu. Samþykktar teikningar eru til viðmiðunar og geta orðið minniháttar frávik á þeim.
Áætlað fasteignamat eignarinnar liggur ekki fyrir þar sem það er ekki búið að þinglýsa eignaskiptayfirlýsingu. Kaupandi greiðir stimpilgjöld af fasteignamati eignarinnar við kaupsamning. Fyrstu kaupendur greiða 0,4% af verðandi fasteignamati en aðrir kaupendur greiða 0,8%. Lögaðilar greiða 1,6% af verðandi fasteignamati. Ekki er hægt að fara í kaupsamning fyrr en búið er að þinglýsa eignaskiptayfirlýsingunni. Fasteignagjöld og brunatrygging fyrir árið 2026 liggur ekki fyrir við tilboðsgerð. Yfirlýsing húsfélags liggur ekki fyrir þar sem ekki er búið að stofna húsfélagið. Seljandi áskyldi sér rétt til að lokafrágangur utanhúss og lóðar sé frágenginn eigi síðar en við afsal. Athuga að myndir eru af íbúð 101 við Kolbrúnargötu 1. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af endanlegu brunabótamati). 

 
** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  ​- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
   
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 115,0 m2 3-4ra herbergja endaíbúð á jaðhæð, merkt 01-0103, í nýju fimm íbúða fjölbýlishúsi við Kolbrúnargötu 3 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 115,0 m2, þar af íbúð 107,1 m2 og geymsla 7,9 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu (væri hægt að breyta í herbergi). Sérgeymsla í sameign á jarðhæð. Rúmgóð sér timburverönd í suðurátt með steyptum skjólvegg.

Eignin afhendist fullbúin í desember 2026 með gardínum, gólfefnum, innréttingum frá HTH og innbyggðum eldhústækjum. Búið að leggja rafmagn fyrir rafbílahleðslu frá ON á sameiginleg bílastæði. 
Skv. samþykktum bygginganefndarteikningum, þann 29.11.2024, þá er búið að fá samþykki fyrir svalalokunum á öllum íbúðum í húsinu. Íbúðirnar eru afhentar án svalalokana og eru kaupendur hvattir til að kynna sér vel skilmála svala og verandalokana, áður en þeir taka ákvörðun um að fara í þá framkvæmd.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Eldhúsinnrétting frá HTH með blástursofni, örbylgjuofni, spanhelluborði, viftu frá Airforce, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp og frystiskáp. Heimilistæki frá AEG. Úr stofu er gengið út á rúmgóða afgirta timburverönd í suðurátt.
Sjónvarpsstofa er með parketi á gólfi. Opið er inn í sjónvarpsstofu úr stofu. Hægt væri að setja upp vegg og bæta við þriðja svefnherberginu.
Svefnherbergi nr.1 (hjónaherbergi) er með parketiá gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketiá gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, baðinnréttingu, handklæðaofni og sturtu með sturtugleri.
Þvottahús er með innréttingu þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð hússins.
Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
 
Annað:
Kolbrúnargata 1 er 2ja hæða fjölbýlishús með 5 íbúðum. Húsið er hannað af Garðari Snæbjörnssyni, arkitekt hjá GS-Teiknistofu ehf. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og klætt. Húsið er byggt af Byggingarfélagi Bakka ehf en Bakki er fjölskyldufyrirtæki úr Mosfellsbæ, með yfir 40 ára reynslu af húsbyggingum. Félagið hefur byggt og afhent yfir 250 íbúðir í Mosfellsbæ á sl. 10 árum.
Lóð verður fullfrágengin, 10 bílastæði eru á lóðinni en þar af eru 1 fyrir hreyfihamlaða. Gönguleið að húsi er hellulögð með snjóbræðslu. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotarétt að lóð út frá stofu með afgirtri timburverönd. Íbúðir á 2. hæð eru með rúmgóðar svalir í suðurátt.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með innréttingum frá HTH. Heimilistæki eru frá AEG. Eikarlitað parket á gólfum, frá Birgisson. Flísar á baðherbergjum, þvottahúsi og á forstofu eru frá Birgisson. Blöndunartæki eru frá Tengi.

Verð kr. 91.500.000,-
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kristnibraut 4
Skoða eignina Kristnibraut 4
Kristnibraut 4
113 Reykjavík
97,5 m2
Fjölbýlishús
312
768 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 3 íb. 101
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 17:15-17:45
Ásvellir 3 íb. 101
221 Hafnarfjörður
97,8 m2
Fjölbýlishús
312
919 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0416
Hleðslustöð
Opið hús:20. okt. kl 12:30-13:00
laugaborg-416.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0416
Laugaborg 0416
105 Reykjavík
94,3 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5 íb. 404
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 17:15-17:45
Ásvellir 5 íb. 404
221 Hafnarfjörður
105,5 m2
Fjölbýlishús
312
1013 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin