Fasteignaleitin
Skráð 4. nóv. 2025

Hjallabraut 47C

Nýbygging • RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
158.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
169.000.000 kr.
Fermetraverð
1.067.593 kr./m2
Fasteignamat
118.100.000 kr.
Mynd af Einar Örn Ágústsson
Einar Örn Ágústsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2522261
Landnúmer
231191
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
04
Lóðarréttindi
Leigulóð
Bókið skoðun - sýnum samdægurs

Helgi s. 893-2233, Hlynur s. 698-2603, Einar s. 888-7979, Glódís s. 659-510

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilegt nýbyggt arkitektateiknað endaraðhús á tveimur hæðum að Hjallabraut 45-49 í Hafnarfirði. Frábær staðsetning og útsýni í rótgrónu hverfi miðsvæðis í Hafnarfirði í göngufjarlægð við náttúruna, Víðistaðatún, verslun, skóla og leikskóla. 
Eignin skilast fullbúin að utan sem og að innan en án megingólfefna. Votrými verða flísalögð.

Um er að ræða 7 raðhús á tveimur hæðum. Sjá aðrar eignir hér.


Húsin eru einstaklega vönduð með Free@Home hússtjórnunarkerfi, sjónsteypuveggjum að hluta, vönduðum innréttingum, stórum svölum. Opið bílskýli. 
Stærðir: 157,5 - 159,7 fm
Herbergi: 4ra herbergja. Tvö baðherbergi og gestasnyrting. 
Verð: 165,8-167,8 m.kr.
Afhending: vor/sumar 2025


- Innréttingar frá Brúnás, sýnilegir fletir á innréttingum verða úr Gladstone melamin efni og að innan úr ljósgráum spónaplötum. 
- Borðplötur í eldhúsi verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni.
- Eldhústæki: Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti og innbyggður kæliskápur. Raftæki sem fylgja eldhúsi koma frá Bræðrunum Ormsson. 
- Gólfhitakerfið fylgir frágengið og verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem er hluti af Free@home hússtjórnunarkerfinu
- Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.

Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf (BYGG) sem er traustur verktaki til fjölda ára.

Nánari upplýsingar veita:
Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is 
Hlynur Halldórsson lfs. s. 698-2603 eða hlynur@hraunhamar.is
Einar Örn Ágústsson lfs. s. 888-7979 eða einar@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir lfs. s. 659-510 eða glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lyngmói 16
Bílskúr
Skoða eignina Lyngmói 16
Lyngmói 16
260 Reykjanesbær
255.2 m2
Einbýlishús
815
662 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Eyktarás 15
Skoða eignina Eyktarás 15
Eyktarás 15
110 Reykjavík
269.6 m2
Einbýlishús
716
649 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Búland 1
Bílskúr
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Búland 1
Búland 1
108 Reykjavík
224.7 m2
Raðhús
624
801 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Skoða eignina Vanabyggð 2b
Skoða eignina Vanabyggð 2b
Vanabyggð 2b
600 Akureyri
166.8 m2
Raðhús
514
503 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin