Fasteignaleitin
Skráð 28. apríl 2024
Deila eign
Deila

Jöfursbás 11E

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
66.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.831.938 kr.
Fermetraverð
858.488 kr./m2
Fasteignamat
54.500.000 kr.
Brunabótamat
38.400.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2021
Lyfta
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2512278
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
8
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Ath! Fataskápar í barnaherbergjum hafa ekki verið festir við vegg. 
Verið er vinna uppgjör vegna orkunotkunar frá upphafi en það liggur ekki fyrir. Á aðalfundi 22. febrúar 2023 voru teikningar kynntar sem fara til skipulagsfulltrúa til samþykktar vegna gustlokana. Það þyrfti svo að fara í samþykkt hjá byggingarfulltrúa-skipulagsfulltrúa og arkitekt. Í framhaldinu yrði leitað tilboða. Það yrði val hvers og eins hvort þeir vilja láta setja upp gustlokun hjá sér. Það var samþykkt að senda inn teikningar til samþykktar hjá byggingarfulltrúaskipulagsfulltrúa. Sjá nánar aðalfundargerð 22.02.23.
Gallar
Á húsfundi í október 2023 var farið yfir stöðu á matsmáli. Sjá nánar í fundargerðum 2022, 2023 og 2024
Domusnova og Ingunn Björg kynna fallega 4. herbergja 66,2 m2 íbúð með glæsilegri sjávarsýn á þriðju hæð í nýlegu lyftuhúsi við Jöfursbás 11 E í Gufunesinu í Reykjavík. Sérinngangur er af svalagangi. Fallegt og bjart alrými með samliggjandi eldhúsi og stofu, þrjú svefnherbergi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi en einnig er vel útbúið sameiginlegt þvottahús á jarðhæð. Sameiginlegur salur á jarðhæð sem íbúar geta leigt af húsfélaginu. Góð hjólageymsla. 

- ATH AÐEINS FYRIR KAUPENDUR Á ALDRINUM 18-40 ÁRA. HLUTDEILDARLÁN EKKI Í BOÐI - HEIMILD ER FYRIR DÝRAHALDI - 

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi, fataskáp og fataslá.
Stofa/borðstofa með harðparketi á gólfi.  Útgengi á vestursvalir með fallegri sjávar og fjallasýn.
Eldhús er í opnu rými með stofu/borðstofu. Gott skápapláss. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I er með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi. Einstök sjávar og fjallasýn. 
Svefnherbergi II er með tvöföldum fataskáp og harðparketi á gólfi. 
Svefnherbergi III er með þreföldum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með upphengdu salerni, sturtuklefa og vaskaskáp. Skápur fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Dúkur á gólfi. 
Í sameign er vinnuaðstaða/veislusalur, pósthús og þvottahús ásamt góðri hjólageymslu.
Íbúðirnar hafa haft afnot af matjurtargarði sem Reykjavíkurborg lánar Jöfursbás 11. 

NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR INGUNN BJÖRG LÖGGILTUR FASTEIGNASALI Í SÍMA 856 3566 EÐA INGUNN@DOMUSNOVA.IS.

Um er að ræða íbúð byggða af Þorpinu Vistfélagi á sjávarlóð í Gufunesi í Reykjavík. 
Lyfta er frá jarðhæð sem opnast á stigagang þaðan sem gengið er inn á svalagang að sér inngangi íbúðarinnar.
Upphitaðir göngustígar inni í porti á milli húsa.
Einstakt útsýni til sjávar og fjalla.


Íbúðirnar eru á sjávarlóð nyrst í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsilegt útsýni að Viðey og Geldinganesi ásamt gönguleið yfir í Geldinganes. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar á borgarlandi meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi fyrir sunnan og ofan þessarar nýju byggðar. Megin stígar innan lóðar eru malbikaðir, við aðkomu og innganga eru stéttar hellulagðar. Lögð er áhersla á algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Gert er ráð fyrir trjágróðri við megin gönguleiðir og til rýmismyndunar við dvalarsvæði. Íbúðahúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll og grasfleti. Torgið er við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum.Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma.

Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/09/202117.050.000 kr.38.418.000 kr.66.2 m2580.332 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Berjarimi 20
Skoða eignina Berjarimi 20
Berjarimi 20
112 Reykjavík
66.3 m2
Fjölbýlishús
211
867 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Skoða eignina Þórsgata 14
Opið hús:02. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Þórsgata 14
Þórsgata 14
101 Reykjavík
50.2 m2
Fjölbýlishús
312
1094 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Nökkvavogur 7
Skoða eignina Nökkvavogur 7
Nökkvavogur 7
104 Reykjavík
69.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
845 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 98
Skoða eignina Laugavegur 98
Laugavegur 98
101 Reykjavík
59.1 m2
Fjölbýlishús
211
929 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache