BERG fasteignasala kynnir: Safamýri 45, neðri sérhæð.
Íbúðin er 143,6 fm. og bílskúrinn; 27,6 fm. samtals ; 171,2 fm. Vel staðsett eign í grónu og vinsælu hverfi með 5 svefnherbergjum.
Nánari lýsing: Komið er í anddyri með fatahengi inngreyptri lýsingu í lofti. Endurnýjuð gestasnyrting með flísum, glugga og upphengdu salerni. Tölvukrókur og inn af honum er forstofuherbergi, nýlegt parket á gólfum. Borðstofa með nýlegu parketi á gólfi og þaðan er hurð út á stórar skjólgóðar suður og vestursvalir. Björt stofa með inngreyptri lýsingu í loftum, gluggum á tvo vegu, nýlegt parket á gólfum. Bjart eldhús með flísum á gólfi, gluggum á tvo vegu, góðri nýlegri innréttingu og eldhústækjum. Herbergisgangur með 3 svefnherbergjum. Endurnýjað baðherbergi með flísum, glugga, hornbaðkari, sturtu og upphengdu salerni.
Neðri hæð. Úr anddyri er gengið á neðri hæð. Þar er rúmgott svefnherbergi með góðum glugga. Aðgengi er að sameiginlegri snyrtingu með sturtu. Einnig er sameiginlegt þvottahús og sameiginleg geymsla/hjólageymsla. Einnig sér geymsla sem fylgir íbúðinni. Bílskúr fylgir eigninni 27,6 fm. Húsið er allt klætt að utan með steni plötum. Hiti er í gólfum.
Nánari upplýsingar hjá Berg fasteignasölu í síma 588-5530 eða eftirfarandi starfsmönnum:
Pétur Pétursson löggiltur fasteignasali - sími 897-0047 - netfang: petur@berg.is
Brynjólfur Jónsson, löggiltur fasteignasali, sími: 898--9791, netfang: brynjolfur@berg.is
Heimasíða Berg fasteignasölu: www.berg.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Berg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.400,- m/vsk
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
06/01/2018 | 59.000.000 kr. | 68.000.000 kr. | 171.2 m2 | 397.196 kr. | Já |
26/03/2007 | 29.950.000 kr. | 40.000.000 kr. | 171.2 m2 | 233.644 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
108 | 127.2 | 92,9 | ||
108 | 129 | 93,9 | ||
102 | 117 | 91,9 | ||
104 | 123.6 | 95,9 | ||
110 | 146.7 | 99,9 |