SAFAMÝRI 42, 108 REYKJAVÍK
Glæsileg og mikið ENDURNÝJUÐ 89,7 fm. þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð, þar af er 5,1 fm. geymsla í sameign.
Íbúðin er merkt 02 0301.
Eignin samanstendur af eldhúsi, stofu, tveimur svefnherbergjum, fataherbergi og baðherbergi. Þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Nánari lýsing:
Komið er inn snyrtilegt stigahús, teppi á stiga.
Flísalagt anddyri.
Parketlagt hol sem tengir öll rými. Harðparket frá Egill Árnason.
Björt stofa með útgengi á vestursvalir.
Eldhús var endurnýjað 2021. Flísar milli efri og neðri skápa, gufugleypir og borðkrókur. Innrétting frá IKEA, borðplata frá Fanntófell, span helluborð frá Bosch og Simens bökunarofn. Vaskur frá Ikea. Ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgja með.
Tvö parketlögð svefnherbergi. Stórt fataherbergi inn af hjónaherbergi, hér er möguleiki á að gera aukaherbergi.
Baðherbergi var endurnýjað 2021. Flísar í hólf og gólf frá Vídd, svört blöndunartæki, Damixa sturta, upphengt salerni og granít borðplata.
Skipt um ofna 2021 fyrir utan einn ofn í stofu.
5,1 fm. sérgeymsla í kjallara með opnanlegu fagi og hillum.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Eigninni fylgir bílskúrsréttur.
Framkvæmdir 2026 íSafamýri 40-44.
- Dren var endurnýjað meðfram húsinu samhliða var endurnýjun á stétt / hellulögn, kantsteinar, malbikað og tyrft.
- Veitur endurnýjaðu inntök fyrir heitt vatn.
- Endurnýjun á öllum neysluvatns -og frárennslislögnum í húsinu ofan við botnplötu. Þessi aðgerð er langt komin og klárast 2026.
Safamýri 42 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús, auk kjallara á eftirsóttum stað í höfðuðborginni.
Mjög góð eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og almenna þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is
Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is