Fasteignaleitin
Skráð 19. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Garðastræti 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
59.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
1.094.435 kr./m2
Fasteignamat
46.500.000 kr.
Brunabótamat
28.000.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1935
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2001876
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Sagðar í lagi.
Raflagnir
Sagðar í lagi.
Frárennslislagnir
Sagðar í lagi.
Gluggar / Gler
Sagðir í lagi.
Þak
Sagt í lagi.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita / Sögð í lagi.
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu:

Einstaklega fallega og smekklega innréttaða 2ja herbergja kjallaraíbúð með sérinngangi í reisulegu fjölbýlishúsi við Garðastræti 16 í miðborg Reykjavíkur. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan. Frábær staðsetning og stutt er í Kvosina í iðandi mannlífið, verslanir, veitingastaði, menningu, listir, höfnina, Hörpuna, tjörnina og fl.  

Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 59,3 fm. en gólfflöturinn er aðeins stærri þar sem hluti íbúðar er undir stiga. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, gang, þvottahús og geymslu.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

EIGNIN ER VINSÆL EIGN Í SKAMMTÍMALEIGU. ÖLL HÚSGÖGN OG TÆKI GETA FYLGT MEÐ.  

Nánari lýsing eignar: 
Forstofa: Komið er inn í forstofu með parket á gólfi.
Stofa: Í alrými er björt og rúmgóð stofa, parket á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað 2021. Í alrými er fallega innréttað eldhús með nýrri eldhúsinnréttingu, eyja, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, spanhelluborð, bakstursofn, innfelld vifta, vaskur og blöndunartæki, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Bjart hjónaherbergi, parket á gólfi. 
Baðherbergi: Endurnýjað 2023. Smekklega innréttað baðherbergi með hvítri innréttingu, speglaskápur, upphengt salerni, sturtuklefi, handklæðaofni, vatnshelt parket á gólfi og veggir klæddir með vatnsheldum plötum.
Þvottahús: Inn af forstofu er þvottaaðstaða sem nýtist einnig sem geymsla, innrétting og skápur, parket á gólfi.  
Gangur: Parket á gólfi. 
Geymsla: Inn af gang er geymslurými, hvítir fataskápar, parket á gólfi. 
Lóð: Sameiginleg gróin 367,9 fm. eignarlóð.

Að sögn eiganda var eignin endurnýjuð mikið að innan árið 2021 m.a.:
* Tveir veggir voru fjarlægðir til að gera íbúðina opnari og bjartari og til að búa til eitt alrými fyrir stofu og eldhús.
* Pípulagnir og raflagnir voru endurnýjaðar sem og allir tenglar og rofar. Ný rafmagnstafla sett upp.
* Allir ofnar endurnýjaðir.
 *Nýtt parket á gólfum frá Parka.
* Skipt um loftklæðningu: nýjar loftaþiljur frá Byko.
* Þvottahús með nýrri Ikea innréttingu og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Fataskápur í þvottahúsi.
* Fataskápar frá Ikea.
* Eldhúsinnrétting frá Ikea.
 * Raftæki eru Whirlpool og eru frá Heimilistækjum: Spanhelluborð, bakaraofn og innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð Whirlpool uppþvottavél, innbyggður gufugleypir fyrir ofan helluborð.
 * Ný ljós í allri íbúðinni sem fylgja með.

Baðherbergi var gert upp árið 2023:
 * Skipt var um pípulagnir og raflagnir.
 * Nýtt vatnsþolið vinylparket frá Parka á gólfi.
* Sturta, baðinnrétting, speglaskápur, handklæðaofn og upphengt salerni frá Byko.
* Nýtt Grohe sturtusett.
* Nýjar vatnsheldar plötur á veggi.
* Ný hurð frá Parka.
* Loftaþiljur frá Byko.

Endurnýjað að utan:
 * Skipt var um þakklæðningu á öllu þakinu árið 2024 og ný Aluzink klæðning sett ásamt þakpappa. Einnig voru settar nýjar áfellur á gafla og mæni og loftventlar endurnýjaðir.
* Nýjar þakrennur og niðurfallsrör úr áli sett árið 2024.
* Sólskáli á efstu hæð var endurnýjaður í heild árið 2023 ásamt pappa á þaksvölum.
* Ljósleiðari er í íbúðinni.
* Húsið var drenað og nýjar skolplagnir lagðar frá húsi út í götu fyrir nokkrum árum.

Smekklega innréttuð eign á besta stað í og stutt í alla þá menningu og þjónustu sem að miðborgin okkar hefur upp á að bjóða. Í göngufæri við skóla og leikskóla. Stutt í almenningssamgöngur með tengingar við öll hverfi höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar og sýningu á eigninni annast Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s. 893-3276 eða með tölvupósti: holmar@helgafellfasteignasala.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/09/202338.800.000 kr.54.000.000 kr.59.3 m2910.623 kr.
31/05/202131.900.000 kr.32.200.000 kr.59.3 m2543.001 kr.
28/12/201214.500.000 kr.19.900.000 kr.59.3 m2335.581 kr.
25/10/200711.215.000 kr.17.500.000 kr.59.3 m2295.109 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Framnesvegur 34
Opið hús:23. nóv. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Framnesvegur 34
Framnesvegur 34
101 Reykjavík
64 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 39
Skoða eignina Mýrargata 39
Mýrargata 39
101 Reykjavík
47 m2
Fjölbýlishús
211
1415 þ.kr./m2
66.500.000 kr.
Skoða eignina Vitastígur 9 - íb.001
Vitastígur 9 - íb.001
101 Reykjavík
57.6 m2
Fjölbýlishús
21
1127 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Vitastígur 9
Skoða eignina Vitastígur 9
Vitastígur 9
101 Reykjavík
57.6 m2
Fjölbýlishús
211
1127 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin