Fasteignaleitin
Skráð 22. jan. 2026

Nesflói 1

Atvinnuhúsn.Vesturland/Akranes-300
169.4 m2
Verð
Tilboð
Fasteignamat
45.900.000 kr.
Brunabótamat
55.950.000 kr.
Mynd af Ólafur Ingi Guðmundsson
Ólafur Ingi Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2510103
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
02
Lóðarréttindi
Leigulóð
Atvinnueign fasteignasala kynnir til sölu atvinnuhúsnæði við Nesflóa 1, Akranesi.
Um er að ræða 169,4 fm atvinnurými (séreign 102) í vönduðu og nýlegu atvinnuhúsi í Grænum iðngörðum á Akranesi.
Húsið er byggt á steyptum grunni með stálburðarvirki og yleiningum. Rýmið er hluti af húsi sem samanstendur af 7 séreignarhlutum og sameign með inntaksrými. Milliloft er fullbúið með snyrtingu, parketlögðu gólfi og eldhúsinnréttingu. Háir gluggar í þakbroti veita góða dagsbirtu.
Lóð er fullfrágengin og malbikuð. Svæðið er afgirt með galvan- og pólýhúðaðri girðingu og rafstýrðu, símastýrðu hliði. Merkt og upphituð bílastæði eru fyrir framan húsið. Aðgangsstýringar, lyklalaust aðgengi og öryggismyndavélar eru til staðar.

Skilalýsing frá seljanda:
Húsið er byggt á einangruðum sökkli og botnplötu úr járnbentri steinsteypu. Útveggir eru úr stáli með yleiningum. Þak er fullfrágengið með 150 mm einangrun og þakdúk með UV-vörn. Þakniðurföll eru tengd fráveitu og blágrænum ofanvatnslausnum.
Milliloft er skilað fullbúnu með snyrtingu, parketlögðu gólfi og eldhúsinnréttingu. Lóð er malbikuð og afgirt. Rafstýrt og símastýrt hlið er inn á lóð og gönguhurð fyrir gangandi.

Seljandi greiðir öll lóðargjöld til bæjarins og heimæðagjöld vegna vatns og rafmagns. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.

Áhvílandi er á eigninni virðisaukaskattskvöð og miðast sala við að kaupandi yfirtaki kvöðina.

Allar upplýsingar í söluyfirliti eru fengnar frá seljanda og úr opinberum gögnum.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í 847-7700 - olafur@atvinnueign.is

Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is
   
                   - Atvinnueignir eru okkar fag - 

************
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Atvinnueign því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr.- af hverju skjali.
Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á heimsíðu lánastofnana.
Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Til leigu
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
300 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Bíldshöfði 20
Til leigu
3D Sýn
Skoða eignina Bíldshöfði 20
Bíldshöfði 20
110 Reykjavík
1,501 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin