Fasteignaleitin
Skráð 20. okt. 2025

Vorbraut 1 - íb 202

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
123.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
1.054.383 kr./m2
Fasteignamat
72.800.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2540097
Landnúmer
236101
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
NÝTT (2025)
Raflagnir
NÝTT (2025)
Frárennslislagnir
NÝTT (2025)
Gluggar / Gler
NÝTT - Viðhaldslétt (2025)
Þak
NÝTT - Viðhaldslétt (2025)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu íbúðir við Vorbraut 1 í Hnoðraholti Garðabæjar  -  Um er að ræða glæsilegt sjö íbúða lyftufjölbýli þar sem öllum íbúðum er skilað með sérsmíðuðum innréttingum og vönduðum tækjum ásamt því að allt ytra birgði húsins er gert eins viðhaldslétt og kostur er.  Allar íbúðir eru 3ja herbergja, þ.e. með 2 svefnherbergjum.  Öllum íbúðum fylgir stæði í opinu bílaskýli en auk þess fylgir tveimur íbúðum bílskúr sem innbyggður er í húsið.  Íbúðirnar afhendast fullbúnar með sérsmíðuðum loftháum innréttingum og skápum í viðarliti frá Arens.  Íbúðir afhendast án gólfefna en á baðherbergjum og í þvottahúsum verða flísar.  Gólfsíðir gluggar eru í öllum íbúðum og þar sem húsið stendur ofarlega á holtinu þá er glæsilegt útsýni úr þeim flestum.  Upphitun íbúða er með gólfita og ráð gert fyrir snóbræðslulögn við húsið.  Íbúðir á 1. og 2. hæð við SV-horn eru afhentar með svalalokun.  -  Hnoðraholt er spennandi og vaxandi hverfi á góðum stað innan höfuðborgarsvæðisins nálægt helstu stofnbrautum. Stutt í náttúruna, Vífilstaði, Heiðmörk og góða golfvelli, íþróttahúsið Miðgarð, Smáralind og skóla.  -  Allar nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Bjarna lgf. í síma 773-3532 eða email: adalsteinn@fstorg.isog Margrét Rós lgf. í síma 856-5858 eða email: margret@fstorg.is

*** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA EINKASKOÐUN ***

Íbúð 202: Glæsileg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2.hæð með tvennar svalir, skráð stærð er samtals 123,40 fermetrar.

Forstofa/anddyri: Með loftháum fataskápum.
Hjónaherbergi: Stórt herbergi með loftháum fataskápum yfir heilan vegg og útgengi á suðursvalir.
Svefnherbergi: Rúmgott auka herbergi með loftháum fataskápum.
Alrými: Stórt og opið rými sem telur bæði eldhús og stofu. Eldhúsið er opið með eldunareyju og skilast með vönduðum tækjum frá AEG. Gólfsíðir gluggar á tvenna vegu hleypa mikilli birtu í rýmið. Útgengi á svalir og sérafnotareit sem snýr í suð-vestur.
Baðherbergi/þvottahús: Rúmgott baðherbergi með þvottahúsi inn af. Fallegar flísar á gólfi og veggjum að hluta til. Vegghengd salernisskál, walk-in sturta, handlaug felld ofan í borðplötu.
Sérgeymsla: 7,5 fermetra sérgeymsla inn af sameignargangi á jarðhæð hússins fylgir íbúðinni.
Bílastæði: Sérmerkt stæði í opnu bílskýli á lóðinni fylgir íbúðinni.

*** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT ***

Arkitektar og aðalhönnuðir: Sen&Son arkitektar ehf. 
Verkfræðihönnun: NNE ehf. 
Hljóðráðgjöf: Myrra hönnunarstofa ehf. 
Brunahönnun: Brunahönnun slf. 
Byggingaraðili: Hús og Jörð ehf. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2540097
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 11 íb 103
Opið hús:26. júlí kl 13:00-14:00
Vorbraut 11 íb 103
210 Garðabær
124.2 m2
Fjölbýlishús
413
957 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Holtagerði 54
3D Sýn
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:28. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Holtagerði 54
Holtagerði 54
200 Kópavogur
120.9 m2
Hæð
514
843 þ.kr./m2
101.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 9
Hleðslustöð
IMG_7288.jpeg
Skoða eignina Maríugata 9
Maríugata 9
210 Garðabær
133.6 m2
Fjölbýlishús
423
845 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Vindakór 2
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:28. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vindakór 2
Vindakór 2
203 Kópavogur
123.2 m2
Fjölbýlishús
413
754 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin