Björt og falleg 3ja herbergja endaíbúð í glæsilegri og vandaðri nýbyggingu í rólegu hverfi á Akranesi.-- MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI --Asparskógar 18 er virkilega vandað og vel skipulagt 40 íbúða fjöleignarhús á 2-5 hæðum. Húsið er byggt upp með forsteyptum einingum, einangrað og klætt að utan með ál- og timburklæðningu. Lyftur eru í tveimur opnum stigahúsum, bílastæði og sérgeymslur er í kjallara hússins sem fylgir völdum eignum hússins. Íbúðir skilast fullbúnar að innan með vönduðum innréttingum og gólfefnum. Ljós eru innbyggð að hluta.
Ýtið hér til að skoða og sjá nánar um eignir:
Heimasíða - Asparskogar.isÝtið hér til að skoða skilalýsingu eigna:
Skilalýsing - Asparskógar 18Húsbyggjandi: Ferrum fasteignafélag
Aðalhönnuður: Al-Hönnun ehf.
Íbúð 101 er 71.6 fm., að meðtaldri 3,8 fm. geymslu. Sérinngangur er inn í eignina, afmarkaður 9,6 fm. sérafnotareitur til suðurs Innan eignar er anddyri, stofa, eldhús, tvö herbergi og baðherbergi þar sem einnig er þvottarými.Nánari lýsing:Forstofa: Fataskápur frá GKS. Flísar á gólfi.
Eldhús: Vandaðar hvítar Nobilia innréttingar frá GKS. Raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Vifta er frá Elica. Eldhúsvaskur og blöndunartæki er svart að lit og er frá Tengi. Harðparket á gólfi.
Stofa: Útgegnt út á hellulagða verönd með skjólvegg. Harðparket á gólfi
Svefnherbergi I: Hvítur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Hvítur fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu og hvítri handlaug. Speglaskápur yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin frá Tengi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi.
Verönd: Hellulagður sérafnotareitur með skjólvegg. Útiljós. Vatnsvarinn tengill.
Geymsla: Sérgeymsla eignar er í kjallara, stærð 3,8 fm. Stúkuð af með möskaveggjum frá Rými Ofnasmiðjunni ehf. Gólf er lakkað.
Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 3325,0 fm. Innan lóðar eru 32 bílastæði, þar af eru 14 sérmerkt f. rafmagnsbíla og 3 fyrir hreyfihamlaða. Bílastæði við götu eru malbikuð. Hleðslustöð f. rafbíla er aðgengilegt við bílastæði. Milli húss og bílastæða við götu eru upphituð hellulögð stétt.
Annað: Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans. Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar)
Nánari upplýsingar veita:Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is