Helgafell fasteignasala kynnir til sölu mikið endurnýjað 260,5 m² raðhús með aukaíbúð og bílskúr við Fljótasel 22 í Reykjavík.
Eignin hefur verið endurnýjuð að innan og utan á undanförnum árum.
Meðal framkvæmda eru nýtt þak, endurnýjun eldhúss, baðherbergis og gestasalernis, ný gólfefni ásamt múrviðgerðum og málun að utan.Helstu endurbætur:- 2018: Nýtt þak.
- 2022/2023: Eldhús, baðherbergi á efri hæð, gestasalerni og gólfefni uppfærð.
- 2022: Húsið múrviðgert og málað að utan.
- 2022: Loft sléttuð og máluð.
- 2017/2018: Nýir gluggar á suðurhlið.
- Baðherbergi kjallaraíbúðar hefur einnig nýlega verið tekið í gegn.
Aðalíbúðin er á tveimur hæðum. Í kjallara er 57,3 m² aukaíbúð með sérinngangi sem er í útleigu. Eigninni fylgja bílskúr, fallegur afgirtur garður með stórum palli og rúmgóðar svalir. Í bílskúr er þriggja fasa rafmagn og tenging fyrir rafbílahleðslustöð. Á palli eru tengi og lagnir fyrir heitan pott.Eignin skiptist í:- 91,1 m² aðalhæð: Anddyri, stofu og borðstofu, eldhús, gestasalerni og búr/þvottahús.
- 91,1 m² efri hæð: Svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpshol.
- 57,3 m² kjallaraíbúð: Anddyri, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og rúmgott svefnherbergi.
- 21 m² bílskúr.
Nánari lýsingAðalhæð:Komið er inn í rúmgott, flísalagt
anddyri með góðum skáp með speglahurð. Inn af anddyri er
gestasalerni sem var uppfært 2022/2023.
Stofa og borðstofa mynda rúmgott rými með nýlegu harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir.
Eldhúsið er hálfopið við stofuna og var uppfært 2022/2023. Þar er góð innrétting með miklu skápaplássi, ofni og örbylgjuofni í vinnuhæð, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Flísar eru á milli efri og neðri skápa og harðparket á gólfi.
Inn af eldhúsi er
búr/þvottahús með góðu skápaplássi, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Efri hæð:Hjónaherbergi er með nýlegu harðparketi á gólfi og innbyggðum skáp. Úr herberginu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir.
Tvö barnaherbergi eru með nýlegu harðparketi á gólfum. Annað þeirra er með tvöföldum skáp.
Sjónvarpshol er rúmgott og með nýlegu harðparketi á gólfi. Rýmið er undir súð og hafa veggir og loft verið lagfærð. Samkvæmt upplýsingum eiganda hafði áður fengist samþykki fyrir hækkun þaks til að koma fyrir tveimur herbergjum í rýminu. Staðfesta þarf gildandi leyfi og hvort sækja þurfi um að nýju.
Baðherbergið var uppfært 2022/2023 og er flísalagt á gólfi og veggjum. Þar eru sérstætt baðkar, sturtuklefi, upphengt salerni, handklæðaofn og vaskur með innréttingu.
Þriggja herbergja kjallaraíbúð: Íbúðin er með sérinngangi og er í útleigu.
Anddyri er flísalagt og plastparket á gólfum í holi, stofu og rúmgóðu hjónaherbergi.
Eldhús er með góðri innréttingu og góðu skápaplássi.
Baðherbergi hefur nýlega verið tekið í gegn og er flísalagt á gólfi og veggjum, með sturtuklefa.
Við inngang kjallaraíbúðar er köld geymsla.
Bílskúr:Bílskúrinn er 21 m², með steyptu gólfi og millilofti. Hann er ágætlega djúpur og með þriggja fasa rafmagni og tengingu fyrir rafbílahleðslustöð.
Garður og umhverfi:Fallegur, afgirtur og gróinn garður með stórum palli og tengjum og lögnum fyrir heitan pott. Gengið er út í garðinn af aðalhæð.
Fyrir framan húsið er fallegt sameiginlegt útisvæði með leiktækjum. Upphitaður göngustígur liggur að húsinu.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala – sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, löggiltur fasteignasaliNetfang: runar@helgafellfasteignasala.is