Fasteignaleitin
Skráð 15. júlí 2026

Knarrarvogur 4

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
88.8 m2
3 Herb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
34.850.000 kr.
Brunabótamat
35.255.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
3. hæð
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2023273
Landnúmer
105650
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
02
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Knarrarvogur 4, 104 Reykjavík.

Pálsson Fasteignasala kynnir fjárfestingatækifæri við Knarrarvog 4. Um er að ræða skráða 88,8 fm skrifstofu / atvinnueign á lykilstað þar sem fram undan eru verulegar skipulags- og samgöngubreytingar. Samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Sæbrautarstokks er gert ráð fyrir nýju Vogatorgi á svæðinu þar sem Knarrarvogur 2 stendur í dag, en þar er jafnframt gert ráð fyrir skiptistöð Borgarlínu og nýbyggingum fyrir verslun og þjónustu.

Mikið tækifæri fyrir réttan aðila að þróa skipulagið ásamt öðrum lóðarhöfum.

Helstu atriði
  • Skráð 88,8 fm atvinnueign, skráð sem skrifstofa.
  • Fjárfestingatækifæri á svæði sem tengist Sæbrautarstokk og framtíðaruppbyggingu Vogatorgs.
  • Með tilkomu Sæbrautarstokks skapast samkvæmt skipulagsgögnum forsendur fyrir síðari þróun með blöndu íbúða, verslunar, þjónustu og atvinnuhúsnæðis á svæðinu.
  • Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er miðað við að framkvæmdir við Sæbrautarstokk hefjist 2027 og að verkinu ljúki 2030.

Nánari upplýsingar veita:
Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is


Nánari lýsing
Knarrarvogur 4 er ekki fyrst og fremst hefðbundin eign heldur tækifæri fyrir fjárfesta sem vilja taka stöðu á svæði í umbreytingu. Samkvæmt tillögu að deiliskipulagi er Sæbrautarstokkur ein af lykilframkvæmdum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta umferðarflæði, tengja betur saman hverfi sem nú eru aðskilin með umferðarþungri stofnbraut og draga úr hávaða og loftmengun á yfirborði. Ofan á stokknum er jafnframt fyrirhugaður nýr hverfisgarður með göngu- og hjólatengingum sem á að breyta yfirborði svæðisins verulega.
Í skipulagsgögnunum kemur jafnframt fram að í gildandi skipulagi fyrir Vogabyggð 2 sé atvinnuhúsnæði ráðandi næst Sæbraut, en að með tilkomu Sæbrautarstokks skapist forsendur fyrir síðari þróun með blandaðri byggð, verslun, þjónustu og atvinnuhúsnæði. Þá er gert ráð fyrir nýju deiliskipulagi fyrir Vogatorg, þar sem fyrirhuguð er skiptistöð Borgarlínu og nýbyggingar fyrir verslun og þjónustu, á svæðinu þar sem Knarrarvogur 2 stendur í dag.

Hér getur kaupandi því horft til eignarinnar út frá langtímaþróun svæðisins og þátttöku í framtíðarþróun með öðrum lóðarhöfum. Mikilvægt er þó að halda því til haga að þau gögn sem hér liggja til grundvallar eru tillaga að deiliskipulagi, og að útfærsla einstakra þátta getur tekið breytingum við áframhaldandi verkhönnun.

Sjá nánar um Sæbrautarstokk í skipulagsgátt - https://www.skipulagsgatt.is/issues/2026/580 



www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/09/201513.350.000 kr.13.000.000 kr.108.8 m2119.485 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1987
Fasteignanúmer
2023273
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
1.305.000 kr.

Myndir (5)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 170 íb107 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:16. júlí kl 17:00-18:00
Laugavegur 170 íb107 Heklureitur
105 Reykjavík
112.7 m2
Fjölbýlishús
322
993 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 11
Skoða eignina Kuggavogur 11
Kuggavogur 11
104 Reykjavík
75.4 m2
Fjölbýlishús
211
834 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1 F íb.401
Grensásvegur 1 F íb.401
108 Reykjavík
90.6 m2
Fjölbýlishús
32
991 þ.kr./m2
89.800.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Bílastæði
Opið hús:21. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
82.3 m2
Fjölbýlishús
312
837 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin