Laus strax! Betri Stofan Fasteignasala kynnir fallega, rúmgóða og töluvert endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð á eftirsóttum stað við Álftamýri 14 í Reykjavík. Svalir sem snúa í suður eru yfirbyggðar og með fallegu útsýni. Í sameign er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi ásamt hjóla og vagnageymslu.Eignin sem er 81,0 fermetra skiptist þannig: eldhús, stofa, gangur, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymsla í sameign.
Lýsing eignar:Inngangur, sameiginlegur, flísar á andyri og teppalagt stigahús.
Forstofa, flísalögð með fatahengi.
Eldhús, flísalagt gólf með ljósri Ikea innréttingu, rafmagnshelluborð, tengi fyrir uppþvottavél, viftu, ofn í vinnuhæð og með góðri borðaðstöðu.
Gangur, parketlagður með fataskáp.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð og gengið út á yfirbyggðar svalir til suðurs.
Hjónaherbergi, parketlagt með fataskápum.
Barnaherbergi, parketlagt með fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, baðkar með sturtu.
Í kjallara hússins eru:Sér
geymsla, 4,9 fermetra að stærð, málað gólf og hillur.
Sameiginlegt
þvottahús, með glugga, steypt gólf og sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Þurrkherbergi, málað gólf.
Sameiginleg
hjóla og
vagnageymsla, málað gólf og útgengið á lóð.
Lóðin er fullfrágengin og stór með tyrfðum flötum og sameiginlegum bílastæðum við framhlið hússins.
Húsið, lítur vel út og hefur hlotið gott viðhald og nýlega var skipt um þakjárn, rennur og hús málað og sprunguviðgert.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í miðsvæðis í Reykjavíkur þaðan sem örstutt er í leikskóla, grunnskóla, Kringluna og út á stofnbrautir.
Eignin Álftamýri 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign
201-3799, birt stærð 81.0 fm.
Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson , í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.