Fasteignaleitin
Skráð 18. okt. 2026

Hamrabyggð 5

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
216.5 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
646.189 kr./m2
Brunabótamat
126.100.000 kr.
Byggt 2000
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
22431177
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Fallegt og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum á eftirsóttum stað í Hafnarfirði. Eignin er í góðu og fjölskylduvænu umhverfi, í stuttu göngufæri við golfvöll, fjölbreyttar gönguleiðir og útivistarsvæði, auk grunn- og leikskóla, íþróttaaðstöðu, verslana og ýmissar þjónustu.
Samkvæmt skráningu hjá HMS er eignin alls 216,5 fm að stærð. Þar af er neðri hæðin 121 fm, efri hæðin 66,5 fm og bílskúrinn 29 fm. Raunverulegt gólfflatarými er þó meira þar sem töluvert af efri hæðinni er undir súð.

Neðri hæð:
Forstofa með flísalögðu gólfi og góðum skápum.
Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með vínilparketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á góða verönd með skjólveggjum og heitum potti, sem býður upp á notalega aðstöðu til útiveru.
Eldhúsið er rúmgott og vel skipulagt, með vínilparketi á gólfi og vandaðri innréttingu. Þar er gashelluborð, innbyggður ísskápur og aðstaða fyrir uppþvottavél.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og er með fallegri innréttingu, sturtu, glugga, handklæðaofni og vegghengdu salerni.
Hjónaherbergið er rúmgott, með vínilparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Þvottahúsið er rúmgott, með flísalögðu gólfi og góðri innréttingu. Þaðan er innangengt í bílskúr sem er með millilofti og býður upp á gott geymslupláss.

Efri hæð:  Léttur og opinn fallegurtréstigi liggur upp á efri hæðina, þar sem komið í hol/alrými með p.parket á gólfi. 
Á efri hæðinni eru fjögur rúmgóð svefnherbergi.
Salerni er með flísum á gólfi og að hluta til á veggjum. Þá eru geymslur undir súð sem nýtast vel. 

Lóðin er fullfrágengin með góðri verönd og geymslu. Á veröndinni er heitur pottur sem býður upp á notalega útiveru og afslöppun. Bílaplan steypt með bómeríti og er með hita, sem tryggir þægindi yfir vetrarmánuðina, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásvellir 9 íb. 405
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:22. okt. kl 17:15-17:45
Ásvellir 9 íb. 405
221 Hafnarfjörður
98,8 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 9 íb. 305
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 17:15-17:45
Ásvellir 9 íb. 305
221 Hafnarfjörður
91,4 m2
Fjölbýlishús
312
962 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 9 íb. 206
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 17:15-17:45
Ásvellir 9 íb. 206
221 Hafnarfjörður
97,3 m2
Fjölbýlishús
312
903 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 9 íb. 205
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 17:15-17:45
Ásvellir 9 íb. 205
221 Hafnarfjörður
90,1 m2
Fjölbýlishús
312
920 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin