SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRU VERÐI*Rúmgóðar og vel hannaðar nýjar íbúðir á neðri hæð með sér garði eða íbúðir á efri hæð með sér þakverönd í lokuðum garði með sameiginlegri sundlaug í Pilar de la Horadada, skemmtilegum spænskum strandbæ um 55 mín akstur suður af Alicante.
Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu.
Allar upplýsingar gefa:Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869. Nánari lýsing:
Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa,borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta. Tvö svefnherbergi. Sér baðherbergi með öðru svefnherberginu og auk þess annað baðherbergi. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Íbúðum á neðri hæð fylgir sér garður við húsið þar sem er gott pláss, t.d. til að borða úti og njóta sólarinnar. Íbúðum á efri hæð fylgir stór sér þakverönd með frábærri sólbaðsaðstöðu, skemmtilegri grillaðstöðu og góðu útsýni. Sameiginlegur lokaður sundlaugagarður með góðri aðstöðu.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. hinn vinsæli Lo Romero golfvöllur, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas. Ca. 15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard. Stutt göngufæri í miðbæ Pilar de la Horadada þar sem er gott úrval verslana og veitingastaða. Stutt á ströndina.
Frábært verð:
Íbúð 2 svefnh. + 2 baðh. frá 219.000 Evrur + kostn. við kaupin.Á sama stað er líka hægt að velja íbúðir með 3 svefnh, + 2 baðh.
Verð frá 239.000 Evrur + kostn. við kaupin.
Til afhendingar í desember 2026.
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.
Eiginleikar: sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Pilar de la Horadada,