Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu VESTURBERG 59, 111 Reykjavík.
Tvær þriggja herbergja íbúðir á neðri hæð, möguleiki á breyta í eina íbúð með fimm til sex herbergjum
innst við rólegan botnlanga í Breiðholtinu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, ÖNNUR SKJÖL OG TILBOÐSGERÐ.
Vesturberg 59, hæð, 158,4m² samkvæmt skráningu HMS. Húsið er steypt, byggt árið 1976.
ÍBÚÐ I - Nánari lýsing:
Forstofa, flísar á gólfi. Frá forstofu er innangengt í þvottahús og geymslu.
Gangur, þaðan er innangengt í önnur rými íbúðar.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofu út í sameiginlegan garð.
Eldhús, hvít L-laga innrétting, spanhelluborð og vifta, ofn, stálvaskur, gert ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur fylgt).
Herbergi I, parket á gólfi.
Herbergi II, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtufestingu, vaskinnrétting, standandi salerni og vifta.
Þvottahús, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur, steypt gólf.
Geymsla, steypt gólf.
ÍBÚÐ II - Nánari lýsing:
Alrými með eldhúsi og stofu.
Eldhús, blá L-laga innrétting með efri skápum að hluta til, helluborð, vifta, ofn og stálvaskur
Herbergi I, fataskápar yfir heilan vegg, parket á gólfi.
Herbergi II, parket á gólfi.
Baðherbergi II, flísar á veggjum, flotað gólf, sturta, vaskinnrétting, standandi salerni, handklæðaofn og vifta.
Vesturberg 59 er steypt hús á tveimur hæðum. Timburgluggar og hurðar. Bílastæði eru á bílaplani ofan við húsið. Lóð er gróin/frágengin, garður er í sameign. Íbúðinni hefur verið skipt upp í tvær þriggja herbergja íbúðir með möguleika á útleigu eða að breyta í eina íbúð með sex herbergjum.
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug, heilsurækt og verslun. Eignin er innst í rólegum botnlanga á vinsælum stað í Breiðholtinu Smellið hér fyrir staðsetningu.
Lóð, 1722m² leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 1. október 1972, skjal nr. 008796/1981.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 29/05/2024 | 69.550.000 kr. | 47.000.000 kr. | 158.4 m2 | 296.717 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
210 | 64 | 72,9 | ||
203 | 93,2 | 76,9 | ||
110 | 75,5 | 77,9 | ||
203 | 101,8 | 79,9 | ||
110 | 87,5 | 88,9 | ||
105 | 87,3 | 75,9 |