Kjöreign fasteignasala kynnir: nýlega endurbyggt 70.2 fm heilsárshús ásamt 23 fm nýju geymsluhúsi við Mosaveg 11 í Úthlíð, alls 93.2 fm.
Milliloft er yfir hluta aðalhúss sem að er fullnýtanlegt en þar er gott svefnrými og ágætis lofthæð að hluta. Ekki er búið að skrá geymsluhús/bílskúr í fasteignaskrá hjá HMS. Nýlega er búið að jarðvegsskipta í innkeyrslu og framan við geymsluskúr og útbúa stórt gott bílaplan. Einnig er gert ráð fyrir gestahúsi.
Skjólgóðar og afgirtar verandir framan og til hliðar við húseign og þá er heitur pottur (skel) á verönd.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Sumarhús er 70.2 fm merkt 01-01-01. Eignin stendur á 5000 fm gróinni og skjólsælli leigulóð ofarlega í Skyggnisskógi.
Eignin skiptist í:
Forstofu, herbergjagang, tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, búr/þvottaherbergi, svefnloft sem að er fullnýtanlegt og er ca. 40 fm gólfflötur en eitthvað er undir súð, útigeymslu.
Geymsluskúr 23 fm. með steyptri plötu við innkeyrslu að húsi og er milliloft í honum að hluta. Inngangshurð. Bílskúrshurð með fjarstýringu. Hitaslaufur í gólfi og ídráttarlögn frá aðalhúsi. Þá er lítill geymsluskúr á lóðinni líka. Gert er ráð fyrir gestahúsi og búið er að jarðvegsskipta og setja lagnir.
Nánari lýsing á húseign:
Komið inní forstofu/hol og þaðan er stigi uppá milliloft sem að er með opnanlegum glugga og rúmgóðu plássi sem að nýtt er sem svefnaðstaða.
Herbergjagangur og frá honum er gengið í önnur rými eignar. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru innaf gangi og búr/þvottaherbergi.
Stofa/borðstofa og eldhús renna saman í eitt opið og bjart rými með gluggum á þrjá vegu og mikilli lofthæð, útgengt á verönd úr stofu. Granít sólbekkir í öllum gluggum og fallegt Drápuhlíðargrjót á vegg. Eldhús er opið inní stofu og er með nýlegri eldhúsinnréttingu, frá KVIK, með efri og neðri skápum, eldunareyju með helluborði og skúffuplássi, innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti og vínkælir í innréttingu, Composit í borðplötum í eldhúsi.
Baðherbergi er vel skipulagt með flísum á gólfi og veggjum, Walk-In sturtuklefi með glerskilrúmi, snyrtilega innrétting með skúffum undir vaski, gluggi er á baðherbergi. Composit borðplötu á baði.
Innbyggð útigeymsla með aðgengi af verönd. Lagnir fyrir þvottavél. Ídráttarlagnir í geymsluskúr og framtíðar aukahús.
Gólfefni: Harðparket og flísar eru á gólfum eignar.
Gólfhiti í stofu, eldhúsi, forstofu, baði og svefnherbergisgangi.
Nýr 23 fm geymsluskúr/bílskúr er við enda innkeyrslu að húseign, steypt plata með gólfhita, rafdrifin bílskúrshurð, sér inngönguhurð og góðir gluggar á húsi.
Vandaður og skjólgóður pallur til suð-vesturs með innbyggðri heitavatnsskel, innbyggð lýsing er á verönd, og þá er einnig skjólgóð verönd til suðurs.
Lóðarleigusamningur er til 25 ára frá árinu 2016 og er lóðarleiga ca. 155.000 á ári.
Úthlíðar sumarhúsasvæðið er með 4 síma öryggishliðum og er þetta hús innan þess svæðis, hitaveita er á svæðinu.
Öflugt sumarhúsafélag er rekið á svæðinu og er árgjald í það kr. 16.000.-
Öflug ferðaþjónusta er einnig rekin í Úthlíð en þar er t.d 9 holu golfvöllur, hestaleiga og í Réttinni er veitingarstaður o.fl.
Mjög stutt er á 3 golfvelli, útivistar og göngusvæði, útivistarsvæðið Geysir er í 10 mín akstri og ca. 15 mín akstur er á Flúðir og Laugarvatn.
EINSTAKT TÆKIFÆRI AÐ EIGNAST SUMARHÚS Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ. Möguleiki á aukahúsi. Stutt í golf og útvist. Öflug ferðaþjónusta er rekin í Úthlíð.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða á kjoreign@kjoreign.is
Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða á dan@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða á asta@kjoreign.is