101 Reykjavík fasteignasala í einkasölu: Einkar bjarta og vel staðsetta 47.6 ferm eign í hjarta Reykjavíkur í lyftuhúsi með einstöku útsýni.
Laugardalurinn er í göngufæri og stutt er í alla helstu þjónustu.Lýsing eignar:Forstofa með innbyggðu fatahengi, þar við hliðina á hægri hönd er geymsla/búr.
Baðherbergi er á vinstri hönd frá forstofu, sturtuklefi,salerni og handlaug.
Eldri
eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum að hluta, flísar á milli skápa. Bjart rými með fallegu útsýni til norðurs að Esju og yfir sundin blá.
Stofa parketlögð, björt með stórum glugga til austurs og útgengi út á svalir með einstöku útsýni.
Svefnherbergi parketlagt og með innbyggðum skáp.
Sameiginlegt snyrtilegt þvottahús á jarðhæð.
Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð hússins.Gott aðgengi er að Austurbrún þar sem eru sameiginleg bílastæði fyrir utan hús.
Lyfta tekin upp á níundu hæð hússins.Vel staðsett eign þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu og afþreyingu.
Eign er laus til afhendingar við kaupsamning.Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.
Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is
Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.