Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Álfhólsvegur 22A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
94.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
847.296 kr./m2
Brunabótamat
66.940.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
23485543
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir glæsilega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu í nýlegu lyftuhúsi á  þessum vinsæla stað í Kópavogi. Aukin lofthæð er í íbúðinni, stórir gluggar og gólf parketlögð utan votrými sem eru flísalögð. Parket flæðir á milli rýma og útgengi er úr stofu út á rúmgóðar svalir. Sérgeymsla er í sameign.

Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í bjartan gang með fataskápum og góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með mikilli lofthæð. Góðir fataskápar sem ná hátt upp í loft. Stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn.
Barnaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með fataskápum. Fullkomið sem barnaherbergi eða vinnuherbergi.
Baðherbergi: Snyrtilegt og flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta með glervegg, vegghengt salerni og falleg viðarinnrétting undir handlaug. Speglaskápur með innbyggðri lýsingu.
Þvottahús: Sérlega rúmgott þvottahús innan íbúðar með vinnuborði, vaski og hilluplássi. Hér er gert ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Rýmið er það stórt að það getur einnig nýst sem geymsla.
Eldhús: Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu og vönduðum tækjum. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð og innbyggð uppþvottavél. Gluggi er yfir vaskinum.
Stofa og borðstofa: Bjart alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu. Stórir gólfsíðir gluggar. Úr stofu er gengið út á stórar svalir.
Svalir: Rúmgóðar og skjólsælar svalir. Nóg pláss fyrir grill og útihúsgögn.
Bílastæði: er í lokuðum bílakjallara þar sem er sameiginleg þvottaaðstaða.
Geymsla: er staðsett í sameign en þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Á lóðinni eru samtals 16 íbúðir en Álfhólsvegur 22a og 22b eru tvö hús með sameiginlegu útisvæði á milli. Aðkoma að húsi og sameign er snyrtileg og hiti er í stéttum.

Álfhólsvegurinn er miðsvæðis í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og íþróttastarf.

Nánari upplýsingar veita : 
Ingimar Ingimarsson Lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur ingimar@fastborg.is.
Börkur Hrafnsson Lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8924944, tölvupóstur   borkur@fastborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Borg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 101
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam003.jpg
Hafnarbraut 10a - 101
200 Kópavogur
66.8 m2
Fjölbýlishús
211
1033 þ.kr./m2
68.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 102
Opið hús:30. júní kl 17:00-17:30
VRayCam004.jpg
Hafnarbraut 10a - 102
200 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
413
913 þ.kr./m2
116.990.000 kr.
Skoða eignina Huldubraut 21
Opið hús:07. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Huldubraut 21
Huldubraut 21
200 Kópavogur
223.3 m2
Einbýlishús
524
828 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 1 - íbúð 501
Valshlíð 1 - íbúð 501
102 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
312
1226 þ.kr./m2
130.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin