Fasteignaleitin
Opið hús:27. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 23. ágúst 2026

Kvisthagi 11

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
36.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
1.797.784 kr./m2
Brunabótamat
23.100.000 kr.
Byggt 1950
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20278211
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Borg fasteignasala kynnir til sölu einstaklega sjarmerandi og vel skipulagða tveggja herbergja risíbúð í fallegu fjórbýlishúsi við Kvisthaga 11, 107 Reykjavík. Eignin er á frábærum stað í Vesturbænum. Sérlega björt með fallegu sjávarútsýni og töluvert meira gólfflatarmáli en skráðir fermetrar gefa til kynna.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð samtals 36,1 fm, þar af er íbúðin 33,1 fm og geymsluloft 3 fm. Þar sem um risíbúð er að ræða er gólfflötur hennar töluvert stærri. Samkvæmt eignaskiptasamningi eru um 29,2 fm til viðbótar þar sem lofthæð er 1,8 m eða lægri og teljast þeir fermetrar því ekki með í skráðri stærð eignarinnar.

Gengið er inn um sameiginlegan inngang og upp snyrtilega sameign að íbúðinni.
Stofan er björt og rúmgóð með fallegum gluggum á tvo vegu sem hleypa mikilli birtu inn í rýmið. Þaðan er er fallegt útsýni til sjávar.
Eldhúsið er með eldri innréttingu, límtrésborðplötum og góðum borðkrók.
Svefnherbergið er rúmgott með fallegu útsýni.
Baðherbergið er flísalagt með hornbaðkari.
Parket er á gólfum að undanskildu baðherbergi sem er flísalagt.
Úr íbúðinni liggur stigi upp á risloft sem er skráð sem geymsluloft. Rýmið býður upp á góða nýtingarmöguleika og getur nýst t.d sem svefnherbergi.
Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús. Á bak við húsið er fallegur sameiginlegur garður.
Ástand hússins mjög gott, engar framkvæmdir fyrirliggjandi.


Kvisthagi er róleg og falleg gata á einum eftirsóttasta stað Vesturbæjarins. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun og aðra þjónustu auk þess sem örstutt er í útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir við Ægisíðu.

Falleg og sjarmerandi risíbúð á frábærum stað með góðu útsýni. Aukið gólfflatarmál undir súð gerir eignina sérstaklega skemmtilega og rýmri en skráðir fermetrar gefa til kynna.

Nánari upplýsingar veitir
Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447 - gunnlaugur@fastborg.is.



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3.Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vatnsstígur 20-22
Vatnsstígur 20-22
101 Reykjavík
103.7 m2
Fjölbýlishús
211
1204 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 42
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:26. ágúst kl 18:00-18:30
Skoða eignina Grandavegur 42
Grandavegur 42
107 Reykjavík
150.8 m2
Fjölbýlishús
322
1240 þ.kr./m2
187.000.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 39
lAUGAVEGUR39.jpg
Skoða eignina Laugavegur 39
Laugavegur 39
101 Reykjavík
123.3 m2
Fjölbýlishús
322
718 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Skoða eignina Bakkaflöt 3
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Bakkaflöt 3
Bakkaflöt 3
300 Akranes
166 m2
Raðhús
423
660 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin