Fasteignaleitin
Opið hús:15. mars kl 13:30-14:00
Skráð 11. mars 2026

Krummahólar 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
75.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
752.646 kr./m2
Fasteignamat
53.850.000 kr.
Brunabótamat
38.200.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2049696
Landnúmer
111962
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegar.
Raflagnir
Upprunalegar.
Frárennslislagnir
Upprunalegar.
Gluggar / Gler
Sagðir í lagi.
Þak
Sagt í lagi.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Yfirbyggðar suður svalir úr stofu.
Upphitun
Hitaveita / Sögð í lagi.
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Sprunga er í rúðu í forstofuhurð. 
Sprunga í tveimur glerjum í svalarlokun. 
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Krummahóla 10, íbúð 302, 111 Reykjavík:

Um er að ræða rúmgóða, bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í snyrtilegur fjölbýlishúsi með lyftu. Sérinngangur er af svölum. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá 75,6 fm. Sérmerkt bílastæði íbúðar er á bílaplani fyrir framan húsið. Búið er að lagfæra og endurnýja húsið töluvert að utan. 

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús / borðkrók, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og sérgeymslu sem staðsett er í sameign svo og sameiginleg vagna- og hjólageymsla. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing eignar: 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. 
Hol:  Úr forstofu er gengið inn í rúmgott hol sem hægt er að nýta sem skrifstofurými eða annað, stafaparket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð, stafaparket á gólfi. Útgengi út á ca. 14 fm. suðursvalir með glerlokun, með fallegu óhindruðu útsýni, viðarhellur á svalagólfi munu fylgja, rafmagnstengill á svölum. 
Eldhús / borðstofa: Með hvítri innréttingu, bakaraofn, helluborð og háfur, uppþvottavél, flísar milli skápa, rúmgóður eldhúskrókur við glugga með góðu rými  fyrir borðstofuborð, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, nýlegur fataskápur, parket á gólfi.  
Baðherbergi: Hvít innrétting og veggskápur, baðker með sturtu, flísar á gólfi.
Þvottahús: Innan íbúðar, nýr hvítur skápur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, tengi fyrir vask, snúrur,  flísar á gólfi.  
Geymsla: Á jarðhæð er sérgeymsla.
Sameign: Á jarðhæð er snyrtileg sameign með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu svo og sameiginlegu þvottahúsi 

Lóð: Gróinn fallegur garður. Að framan er steypt stétt að húsi og malbikuðum bílastæðum. Að aftan er stór gróin lóð með hellulögðum verönd og leiktækjum, útgönguhurð er úr hjólageymslu út á baklóð. Sérmerkt bílastæði íbúðar er á bílaplani fyrir framan húsið.
Húsið: Húsinu tilheyrir lítil íbúð sem er í útleigu og gengur leigan upp í hússjóð fyrir húsið. 

Búið er að endurnýja húsið nokkuð að utan undanfarin ár m.a.:
Húsið:

* 2010-2011 Byggt yfir svalir á suðurhlið.
* 2015 Múrviðgerðir á steyptum óklæddum útveggjum og þeir málaðir.
* 2015 Þak málað og þakkantur.
* 2016 Nýr myndavélasími.
* 2017 Suðurhurð í anddyri hússins endurnýjuð.
* 2018 Ný lyfta.
* 2020 Aðalrafmagnstafla endurnýjuð.
* Nýlega er búið að yfirfara þakkanta og skipta um rennur.
* 2026 Yfirstandandi framkvæmdir. Múrviðgerðir og málning á suðurhlið (múr og gluggar málaðir). Skipt um handriði á svölum. 
Íbúð:
* Nýr fataskápur í hjónaherbergi og þvottahúsi.
* Nýleg blöndunartæki í sturtu í baðkeri. 

Rúmgóð og vel skipulögð íbúð á 3. hæð í lyftufjölbýli með frábærum suður svölum og þvottahúsi innan íbúðar. Íbúðin er mjög vel staðsett í Hólahverfinu, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslanir.  Örstutt í náttúruperluna Elliðaárdal.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/03/201930.300.000 kr.29.300.000 kr.75.6 m2387.566 kr.
02/06/201619.100.000 kr.24.200.000 kr.75.6 m2320.105 kr.
10/07/201315.450.000 kr.13.000.000 kr.75.6 m2171.957 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg (0325)
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
IMG_1511.JPG
Skoða eignina Laugaborg (0325)
Laugaborg (0325)
105 Reykjavík
84.7 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (417)
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Selector1.jpg
Skoða eignina Laugaborg (417)
Laugaborg (417)
105 Reykjavík
113.3 m2
Fjölbýlishús
3
988 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 6 - íbúð 201
Opið hús:15. mars kl 12:00-12:30
Eskiás 6 - íbúð 201
210 Garðabær
91.2 m2
Fjölbýlishús
312
986 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarstræti 100 204
Hafnarstræti 100 204
600 Akureyri
53.2 m2
Fjölbýlishús
211
750 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin