Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli við Njálsgötu 102
* Frábær fyrstu kaup
* Laus við kaupsamning
* Vinsæl staðsetning miðsvæðis í Norðurmýrinni, miðbæ Reykjavíkur.
* Þakrennur endurnýjaðar 2016
* Drenlögn sett að sunnanverðu 2018
* Garður þökulagður 2019
* Parket á gólfi var hvítlakkað 2018Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurEignin er skráð samkvæmt Fasteignaskrá Íslands 56,20 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2025 er.
Eignin skiptist í hol, stofu / borðstofu, eldhús, svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.Forstofuhol er með með fatahengi og parket á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi.
Eldhús er með eldri innréttingu með eldavél. Útgengt á
suðursvalir.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 með innbyggðu rúmi og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, handlaug, spegli, skáp og walk-in sturtu.
Sérgeymsla er í sameign rishæð og er að hluta undir súð, skráð 1,8 m2.
Í sameign er einnig sameiginleg geymsla, þvottahús þar sem hver hefur sínar vélar og hitakompa sem er í dag nýtt sem hjólageymsla.
Sameiginlegur skjólgóður
garður.
Iðandi mannlíf í miðborg Reykjavíkur allt í kring. Veitingastaðir, kaffihús og Hlemmur Mathöll, Stutt í Klambratún og fallegar gönguleiðir, leik og grunnskóla.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.