Falleg 3ja herbergja íbúð, gott útleiguherbergi með aðgangi að baðherbergi, auk bílskúrs - á mjög góðum stað í Reykjavík. Góðar leigutekjur - 3 einingar. IMIROX fjármögnun í boði til lögaðila.
Björt og skemmtileg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (efsta hæð í litlu fjölbýli) ásamt bílskúr og útleiguherbergi með aðgang að baðherbergi, samtals 105 fm á þessum vinsæla stað í Smáíbúðarhverfinu í Reykjavík.
Íbúðin er 71,6 fm, útleiguherbergið er 10,5 fm, og bílskúrinn er 22,9 fm. Samtals er birt stærð eignar 105 fm. Tvær íbúðir á hæð og fjórar íbúðir í stigahúsi. S-V svalir. Frábær staðsetning - stutt í verslun, skóla, leikskóla, og mjög góðar tengingar með stofnbrautum og almenningssamgöngum.
Eignin skiptist þannig: Fallegt stigahús og skápur á stigapalli. Flísalögð forstofa, björt rúmgóð stofa með útgengi á s-v svalir. Bjart eldhús með góðum innréttingum.
Svefnálma: Rúmgott hjónaherbergi með skáp og barnaherbergi með skáp. Baðherbergi með baðkari/sturtu, ljós innrétting, flísar, gluggi.
Parket og flísar á gólfum.
Í rúmgóðri sameign er síðan stórt sameigninlegt þvottahús og þurrkaðstaða, einnig útleiguherbergi með glugga, sameiginlegt baðherbergi/snyrting með sturtuaðstöðu.
Góðar leigutekjur af fasteigninni (3 leigueiningar). Kaupandi getur tekið yfir alla eða suma leigusamninga.
Fjármögnun: IMIROX lán til lögaðila í boði á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@titaya.com eða hringið í síma 775-3993.
Þessi fasteign er í beinni sölu hjá fasteignafélaginu Titaya ehf.
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.isDagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
15/06/2022 | 47.550.000 kr. | 60.300.000 kr. | 105 m2 | 574.285 kr. | Já |
12/04/2019 | 40.500.000 kr. | 41.500.000 kr. | 105 m2 | 395.238 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
108 | 82.2 | 79,5 | ||
108 | 80.5 | 79,7 | ||
108 | 137.9 | 79,9 | ||
108 | 84.5 | 81,9 | ||
108 | 123.9 | 74,9 |