**EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA**
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt þriggja herbergja 73,7 fm. íbúð á þriðju og efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Gullsmára 4, Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu með svölum til suð-vesturs, tvö rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Geymsla er staðsett í sameign á jarðhæð ásamt hjóla- og vagnageymslu í kjallara. Eigninni tilheyrir einnig vel staðsett og sérmerkt bílastæði fyrir framan hús. Gott húsfélag og virkt samstarf.
Góð eign á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Smárahverfinu þar sem mjög stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Breiðabliks sem og ýmsa verslun og þjónustu. Einnig eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni. Björt og falleg íbúð með útsýni yfir Kópavogsdalinn. KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Áætlað er að fara í endurbætur á ytra byrði hússins, þaki og þakkanti, niðurfallsrörum, gluggum ofl. Ath. seljandi hefur greitt fyrir sinn hluta í fyrirhuguðum framkvæmdum á húsinu og er því engin auka innheimta á kaupendur. Mánaðarleg húsgjöld íbúðarinnar eru kr. 21.180,- Nánari lýsing:
Forstofa er með góðum fataskáp og spegli. Parket er á gólfum íbúðar en flísar í eldhúsi og baðherbergi.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og grárri borðplötu. Gott helluborð, gufugleypir og bökunarofn er í vinnuhæð. Flísar eru á milli skápa og innfelld lýsing. Flísar á gólfum.
Borðstofa og stofa er í björtu rúmgóðu rými með svölum til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð og með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri hvítri vaskinnréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu og
tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.Geymsla er staðsett í sameign á jarðhæð um 6 fm. að stærð ásamt
hjóla- og vagnageymslu í kjallara.
Bílastæði íbúðar er vel staðsett og sérmerkt fyrir framan hús.
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn.
Að innan hefur eignin verið endurnýjuð að hluta, m.a. eldhús og baðherbergi, gólfefni, hurðar ofl.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.