** Opið hús miðvikudaginn 15. júlí frá kl. 16:30 til 17:00 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og mikið endurnýjað 180,8 m2 einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Byggðarholt 20 í Mosfellsbæ. Húsið stendur á 965 m2 lóð sem er fallega gróin og vel við haldin, bílastæði og stígar hellulagðir, með snjóbræðslu. Birt stærð eignar eru 180,8 m2, þar af íbúð 161,0 m2 og bílskúr 19,8 m2. Einnig er ca. 15 m2 geymsluskúr á lóðinni. Húsið skiptist í forstofu, gang, stofu og borðstofu, eldhús, sólstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og bílskúr. Timburverönd er suðvestan og norðaustan við húsið. Húsið er vel staðsett í vinsælu og grónu hverfi í Mosfellsbæ, stutt í vinsælar gönguleiður, skóla, leikskóla, verslun og alla helstu þjónustu.** Smelltu hér og fáðu söluyfirlit sent strax ** Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Forstofa, stofa og gangur eru með gegnheilu parketi á gólfi. Í lofti er innfelld lýsing sem stýra má með appi.
Eldhús var endurnýjað 2022 og hannað af Rut Kára. Sér smíðuð innrétting frá Smíðaþjónustunni. Innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur, tveir ofnar, gaseldavél og háfur. Flísar eru á gólfi með gólfhita. Innfelld lýsing í lofti.
Baðherbergi var endurnýjað 2016 og er flísalagt í hólf og gólf, með gólfhita. Fallegar innréttingar frá HTH. Vegghengt salerni, handlaug, sturta að baðkar.
Hjónaherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Sólskáli er inn af stofu, gengið niður tvö þrep. Parket er á gólfi með gólfhita. Innfelld lýsing í lofti. Útgengt í bakgarð um svalahurð. Innangengt í bílskúr og þvottahús.
Þvottahús er með flísum á gólfi, góðum innréttingum með góðu skápaplássi, vaski og vinnuborði. Útihurð er í þvottahúsi sem hægt er að nota sem annan inngang í húsið.
Bílskúr er í dag nýttur sem skrifstofa en væri hægt að útbúa herbergi eða stúdíó íbúð. Flísar á gólfi og gólfhiti. Útgengt er úr bílskúr um svalahurð.
Innkeyrsla og stígur að útihurð eru hellulögð og með hita undir. Hleðslustöð fyrir rafbíla er við innkeyrslu.
Garðurinn snýr í suðvestur og norðaustur og er gróinn og fallegur með timburveröndum beggja vegna húss. Philips Hue lýsing er í garði norðaustan megin.
Öryggis- og brunakerfi tengt Securitas fylgir húsinu.
Eignin hefur fengið mikið og gott viðhald fagmanna á undanförnum árum. Helstu framkvæmdir samkvæmt seljanda: Eldhús var endurnýjað 2022. Baðherbergi var endurnýjað 2016. Skipt um pappa og járn á þaki ca. 2007. Þak yfirfarið 2019. Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar á s.l. 10 árum. Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar. Búið er að endurnýja raflagnir og rafmagnstöflur. Rafmagnstöflur eru þrjár; fyrir íbúðarrými, bílskúr og þvottahús og fyrir garðinn.
Verð kr. 154.800.000,-