Eignasala.is kynnir í einkasölu:
Hátún 34, 230 Reykjanesbæ
6 herbergja efri hæð og ris í mjög reisulegu og fallegu tvíbýlis húsi innst í botnlanga ásamt 32,5m² bílskúr.samtals 212m2
Eignin skiptist í forstofu, stigagang, eldhús, baðherbergi, þvottahús, stofu og þrjú svefnherbergi á hæðinni. Tvö svefnherbergi og hol ásamt baðherbergi eru í risi.
Gengið er inn í flísalagða forstofu en steyptur stigi með nýju teppi og stigapallur er upp á hæðina. Fyrir miðri íbúð er breiður og rúmgóður gangur sem tengir saman öll rýmin á hæðinni, með gólfhita og náttúrustein á gólfi. Parket er í borðstofu/stofu sem og á öllum herbergjum á hæðinni. Hurð er út á svalir frá stofu.
Eldhús er með innréttingu, heimilistæki eru úr burstuðu stáli, með keramik helluborði.. Í eldhúsinu er náttúrusteinn á gólfi.
Baðherbergið á hæðinni er með flísum á gólfi og á veggjum og hiti í gólfi, falleg kirsuberjainnrétting, stór flísalagður sturtuklefi og hornbaðkar.
Í risi eru tvö stór herbergi með innbyggðum fataskápum, parket er á gólfi í herbergjum og sameigninlegu rými. Baðherbergið í risinu með flísalögu gólfi, hvít innrétting og klósett.
ATH. RÝMIÐ Í RISI ER ÓSKRÁÐ OG EKKI INNI Í UPPGEFINNI FERMETRATÖLU SAMKV. FMR.
Í risi eru þrír nýlegir kvistir og á þaki er nýlegt þakjárn, ásamt nýrri einangrun og pappa. Búið er að endurnýja skolplagnir, ofnalagnir og neyslulagnir sem og raflagnir og rafmagnstöflu. Nýlegar innihurðir eru í öllu húsinu og búið að skipta um glugga í bílskúr.
Innkeyrsla og aðkoma ný hellulögð.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
27/12/2019 | 31.700.000 kr. | 40.800.000 kr. | 147.9 m2 | 275.862 kr. | Nei |
03/09/2015 | 17.750.000 kr. | 28.500.000 kr. | 147.9 m2 | 192.697 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
230 | 176.6 | 68 | ||
230 | 160 | 66 | ||
230 | 188.9 | 64,9 | ||
260 | 175.9 | 62,9 | ||
260 | 181 | 64 |